Hjólað í vinnuna
Í dag hefst fyrirtækjakeppnin "hjólað í vinnuna" og stendur í 20 daga. Einu gildir hvort fólk hjólar, skokkar, gengur eða notar línuskauta, allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur.
Í dag hefst fyrirtækjakeppnin "hjólað í vinnuna" og stendur í 20 daga. Einu gildir hvort fólk hjólar, skokkar, gengur eða notar línuskauta, allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur.
Þann 9. maí næstkomandi stendur Tengslanet austfirskra kvenna, TAK, fyrir mikilli handverks-, hönnunar- og listakynningu á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Lagt var upp með að fá eina konu úr hverju bæjarfélagi frá Hornafirði til Vopnafjarðar til að kynna verk sín og rekstur, en ásókn og áhugi á þessu er svo mikill að fleiri en tuttugu og þrjár konur munu kynna og enn bætist í hópinn. Fjölbreytileikinn verður í fyrirrúmi og allar konur sem vilja kynna sér íslenskt handverk, hönnun og listir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Frá byrjun fiskveiðiársins til 29. apríl sl. var þorskafli íslenskra skipa sem reiknaður er til aflamarks orðinn 113.205 tonn sem er 72,5% af leyfilegu aflamarki yfirstandandi fiskveiðiárs. Þetta er nokkuð minna nýtingarhlutfall sé miðað við sama tíma í fyrra þegar búið var að veiða 75,6%. Ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að auka aflamarkið um 30 þúsund tonn í janúar sl. gæti þar haft einhver áhrif.
Fjórar námsbrautir hefjast í haust hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Allt sem þarf til að stunda fjarnám hjá Endurmenntun er nettengd tölva. Það skiptir því engu máli hvar viðkomandi er staddur á landinu. Endurmenntun Háskóla Íslands hefur frá árinu 2005 kennt námsbrautir sem hægt er að stunda í fjarnámi.
Nýlega kom út hjá Edizioni Plus í Písa ritið Discrimination and Tolerance in Historical Perspective í ritstjórn Guðmundar Hálfdanarsonar prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í bókinni eru 22 greinar eftir 40 höfunda frá 16 löndum, en allir höfundarnir eru þátttakendur í öndvegisnetinu CLIOHRES.net, sem er styrkt af vísindaáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið er til fimm ára og er skipulagt af 45 háskólum með þátttöku 180 fræðimanna frá 31 landi úr mismunandi fræðigreinum; sagnfræði, landafræði, listasögu, málvísindum, guðfræði, félagsfræði og heimspeki.
Vegagerðin hefur auglýst vegagerð á hringveginum í Skriðdal. Um er að ræða 11 kílómetra langan kafla. Þar af verða 4,7 kílómetrar endurbyggðir en 6,3 kílómetrar verða nýr vegakafli. Vegalínan mun ýmist liggja um núverandi veg, tún eða mjög lítið grónar eða ógrónar áreyrar. Nýjar brýr verða byggðar yfir Þórisá, 10 metra löng, Eyrarteigsá, 14 metrar, og Jóku, 32 metrar. Einbreiðar brýr eru yfir þessar ár á núverandi vegi. Allar verða brýrnar tvíbreiðar með 8,5 metra breiðri akbraut og hálfs metra breiðum bríkum.
Tilboðum í verkið á að skila fyrir 19. maí. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2011.
Þinghópur Borgarahreyfingarinnar lýsir yfir stuðningi við meginkröfur Hagsmunasamtaka heimilanna. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna íbúðarskulda ganga alltof skammt. Ekki nægir að bregðast við vanda heimila sem þegar eru komin í þrot. Gera þarf ráðstafanir til að koma í veg fyrir að tugþúsundir heimila fari sömu leið.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.