Allar fréttir
Félagsstarf eldri borgara á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði lagt niður tímabundið
Félag eldri borgara á Reyðarfirði hefur í samráði við Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar ákveðið að fella tímabundið niður félagsstarf eldri borgara. Félag eldri borgara á Fáskrúðsfirði tók einnig ákvörðun um lokun í gær frá deginum í dag.
„Hollt og gott að senda meiri kærleik út í heiminn“
Kærleiksdagar voru haldnir öðru sinni í Verkmenntaskóla Austurlands í síðustu viku. Markmið dagana er að safna fé til kærleiksríks málefnis sem nemendur velja. Pieta, forvarnarsamtök gegn sjálfskaða og sjálfsvígum, varð fyrir valinu í ár og söfnuðust rúmar 160 þúsund krónur.
Sjö í sóttkví en ekkert smit
Sjö einstaklingar á Austurlandi eru í sóttkví samkvæmt tilmælum Almannavarna til að hindra útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Enn hefur ekki greinst smit á svæðinu. Almannavarnir á Austurlandi hafa nýtt síðustu daga til að undirbúa viðbrögð þegar og ef smit kemur upp á svæðinu.Eldhúsyfirheyrslan: Tapaði næstum glórunni eftir grænt blandara slys
Í eldhúsyfirheyrslu vikunnar er hún Alda Björg Lárusdóttir. Matgæðingur síðustu viku skoraði á hana að taka þátt og lét hún ekki spyrja sig tvisvar. Alda er búsett á Egilstöðum ásamt manni sínum og börnum. Hún starfar með eldri borgurum í Hlymsdölum á Egilsstöðum. Hún deilir með okkur uppskrift að afar girnilegum kanilsnúðahjörtum.