Allar fréttir
Geta kosið á milli sex nafna
Íbúar nýs sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Djúpavogshrepps og Fljótsdalshéraðs geta valið á milli sex tillagna um nafn á nýtt sveitarfélag samhliða sveitarstjórnakosningunum þann 18. apríl.100 milljónir til uppbyggingar við Stuðlagil
Landeigendur og ábúendur við Stuðlagil á Jökuldal fá samanlagt yfir 100 milljónir til framkvæmda á svæðinu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Það er um helmingur þeirrar upphæðar sem sjóðurinn veitir til framkvæmda á Austurlandi í ár.Hans Klaufi kemur austur
Leikhópurinn Lotta verður mun sýna Hans Klaufa hér á Austurlandi nú í vikunni. Þau munu sýna Djúpavogi, Neskaupstað, Vopnafirði og á Egilsstöðum. Um er að ræða glænýja leikgerð af þessu vinsæla leikriti en þau sýndu það fyrst árið 2010.
Lykilatriði að nota sápu og þvo sér vel um hendurnar til að forðast kórónaveiruna
Venjuleg handsápa er besta og áhrifaríkasta vopnið í baráttunni við útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Andlitsgrímur gera lítið gagn til varnar, áhrifaríkara er að forðast að snerta á sér andlitið.Skógræktin jákvæðust fyrir heimafólkið
Skógræktarstjóri segist bjartsýnn á að skógrækt geti orðið atvinnugrein sem efli hinar dreifðu byggðir á Íslandi. Vöxtur trjáa hér sé ekki lakari en á svæðum erlendis á sömu breiddargráðu þar sem nytjar af skógi eru aðalatvinnugreinin. Til þess þarf þó stuðning ríkisins til að hjálpa skógræktinni af stað, eða fjárfestingar frá einkaaðilum. Binding kolefnis gæti verið leið til að laða þá að.Þróttur Nes skrefi nær íslandsmeistaratitli
Um helgina fóru fram leikir í Mizunodeildum karla og kvenna í blaki. Þróttur Neskaupstað tók á móti liði Álftaness. Karlalið Þróttar sigraði báða sína leiki en hjá konunum unnu liðin sitt hvorn leikinn.