Blak: Kvennaliðið hafði ekki við Aftureldingu

Kvennalið Þróttar í blaki tapaði tveimur leikjum gegn Aftureldingu um helgina, þeim fyrri í bikar og þeim seinni í deild. Þróttarliðið átti ágæta spilkafla inn á milli.

Bikarleikurinn átti að vera leikinn upp úr hádegi á laugardag en frestaðist fram til kvölds vegna seinkunnar á innanlandsflugi. Leikurinn hófst loks klukkan rúmlega níu um kvöldið.

Þróttur átti ágæta fyrstu hrinu, lenti aðeins undir fyrst en komst yfir 13-10. Þá skoraði Afturelding fimm stig í röð og kláraði síðan hrinuna 20-25. Afturelding hafði yfirburði í seinni tveimur hrinunum, vann þær 10-25 og 14-15. Ester Rún Jónsdóttir og Ana Pimenta voru stigahæstar hjá Þrótti, hvor með átta stig.

Deildarleikurinn hófst síðan í hádeginu á sunnudag. Þróttur fór ágætlega af stað í fyrstu hrinu en svo seig undan liðinu og hún tapaðist 20-25. Í annarri hrinu var liðið 10-9 yfir þegar Afturelding fór að raða niður stigum, komst í 11-18 og vann 19-25.

Í þeirri þriðju var staðan líka 10-9 þegar Afturelding fór af stað, komst í 10-14 en Þróttur minnkaði muninn í 14-15. Nær komst liðið ekki og Afturelding vann örugglega 18-25. Ester Rún og Ana voru aftur stigahæstar, hvor með 11 stig.

Með sigrinum jafnaði Afturelding KA að stigum í efsta sæti deildarinnar, bæði hafa 32 stig. Þróttur er í sjötta sæti með 9 stig.

Karlalið Þróttar átti að leika gegn HK á laugardag en eftir hina miklu seinkunn á flugi var leiknum frestað. Kvennaliðið á næst útileik gegn KA á föstudag.

Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigga Þrúða

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar