Tveir Norðfirðingar í atvinnumennsku í knattspyrnu

Tveir uppaldir Norðfirðingar hafa í mánuðinum skrifað undir samninga við erlend knattspyrnulið. Hvorugur þeirra fer þó beint út frá austfirsku liði.

Telma Ívarsdóttir hefur verið samningsbundin Breiðabliki frá árinu 2016 en hún er uppalin í Neskaupstað og spilaði fyrstu meistaraflokksleikina með Fjarðabyggð. Ferill hennar er reyndar merkilegur fyrir þær sakir að hún byrjaði sem framherji áður en hún var færð í markið.

Telma er fædd árið 1999 og skrifaði undir 2,5 ára samning við Glasgow Rangers í Skotlandi. Í kynningu félagsins á henni segir að þar fari markvörður sem hafi unnið til fjölda titla, en Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari og hafi reynslu úr Meistaradeildinni auk 12 landsleikja.

„Ég er mjög spennt fyrir að koma hingað. Þjálfararnir þurftu ekki að segja neitt, þeir sýndu mér aðstöðuna og æfingasvæðið og ég varð yfir mig hrifin, líka af borginni. Ég veit að Rangers er framúrskarandi lið sem er alltaf í Meistaradeildinni og ég vona að reynsla mín af því að vinna titla nýtist því,“ er haft eftir Telmu þar.

Jo Petter, aðalþjálfari liðsins, segir að útsendarar félagsins hafi fylgst með Telmu í heilt ár. Þeir hafi meðal annars heillast af henni í landsleikjum gegn Bandaríkjunum og Þýskalandi. Hún sé afar reynd miðað við hversu ung hún er af markmanni að vera þannig hún geti náð enn lengra.

Þá hefur Jón Breki Guðmundsson verið lánaður til Empoli, með möguleika á að ítalska félagið kaupi hann í sumar. Framgangur Jóns Breka hefur verið skjótur. Hann fór frá KFA í ágúst til ÍA eftir að hafa leikið 12 leiki í annarri deildinni.

Jón Breki er fæddur árið 2008 og spilaði með unglingaliði ÍA og nágrannaliða seinni hluta sumarsins. Hann var síðan fenginn til Empoli til reynslu strax eftir tímabilið. Hann á að baki fimm landsleiki með íslensku unglingalandsliðunum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.