![](/images/stories/news/2024/eyvindur_waren_pedro.jpg)
Eyvindur Warén á Ólympíuleika æskunnar
Skíðamaðurinn Eyvindur Halldórsson Warén frá Fljótsdalshéraði verður meðal fulltrúa Íslands á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem haldin er í Georgíu í næstu viku.Ísland sendi alls 15 þátttakendur á mótið sem haldið er í borginni Bakuriani. Eyvindur er einn af átta keppendum í alpagreinum. Alpagreinafólkið leggur af stað til Georgíu á morgun.
Leikarnir hefjast á sunnudag en keppni í alpagreinum á mánudag. Þá verður keppt í stórsvigi karla. Svigkeppni karla er síðan á fimmtudaginn eftir viku.
Eyvindur er skráður hjá Skíðasambandi Íslands á vegum UÍA en þannig keppa austfirskir skíðaiðkendur á landsvísu. Hann kemur upphaflega úr Skíðafélaginu í Stafdal en hefur síðustu vetur æft með Skíðafélagi Akureyrar enda er hann í námi í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Síðasta mót Eyvindar fyrir leikana var á Dalvík um miðjan janúar. Þar komst hann á verðlaunapall í sínum flokki og fullorðinsflokki í svigi.
Mynd: Aðsend/Pedromyndir