Íþróttir: Þróttur átti ekki roð í toppliðið

Karlalið Þróttar í blaki átti litla möguleika gegn toppliði Hamars þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni á föstudagskvöld. Daginn áður tapaði Höttur með minnsta mun í úrvalsdeild karla í körfuknattleik.

Þróttur og Hamar voru fyrir leikin á sitt hvorum enda töflunnar og því viðbúið að leikurinn yrði Þrótti erfiður. Svo fór, Hamar vann 0-3 eða 16-25, 18-25 og 16-25 í hrinum. Forskot Hveragerðisliðsins var aldrei í hættu.

Jose Martin, Miguel Melero og Andri Snær Sigurjónsson voru atkvæðamestir í liði Þróttar. Tveir fyrrum leikmenn liðsins, þeir Ragnar Ingi Axelsson og Valgeir Valgeirsson, spiluðu með Hamri.

Þróttur er nú orðinn neðstur í deildinni, með átta stig úr 15 leikjum. Kvennalið Þróttar á síðan leik gegn Völsungi í dag klukkan 18:00.

Þær eru betri fréttirnar af Eyrúnu Sól Einarsdóttur, uppöldum Norðfirðingi, sem undanfarin ár hefur búið í Noregi. Hún varð um helgina bikarmeistari með liði sínu TF Viking. Eyrún Sól á að baki leiki með norska landsliðinu.

Karlalið Hattar tapaði 63-64 fyrir Grindavík í úrvalsdeild karla á fimmtudagskvöld. Leikurinn var afar jafn þar sem liðin spiluðu þéttan varnarleik. Mesti munur í leiknum var sex stig og það segir sína sögu að síðasta karfan, sú sem réði úrslitum, var skoruð tæpum þremur mínútum fyrir leikslok.

Sigið hefur á ógæfuhliðina hjá Hetti sem aðeins hefur unnið einn af síðustu átta leikjum sínum. Í fimm leikjanna hefur munurinn verið ein kafa eða minni. Liðið er núna á botninum með Haukum, tvö stig eru upp úr fallsæti og fjögur stig í úrslitakeppni. Liðið mætir Njarðvík á útivelli annað kvöld.

Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigga Þrúða

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar