Körfubolti: Góð frammistaða dugði ekki til gegn Njarðvík

Lið Hattar sýndi fínan leik, þó á öðrum forsendum en fyrir viku, en tapaði samt fyrir Njarðvík 110-101 fyrir Njarðvík í gærkvöldi. Úrslit annarra leikja gerðu stöðu liðsins í fallbaráttunni viðkvæmari.

Móti Grindavík fyrir viku sýndi Höttur framúrskarandi varnarleik þar sem stigaskor hvors liðs fór rétt yfir 60 stig. Í gærkvöldi var það hins vegar sóknarleikurinn sem gekk vel en vörnin verr.

Njarðvík byrjaði betur, komst í 18-9 en Höttur minnkaði muninn fyrir lok fyrsta leikhluta niður í 30-23. Njarðvík var um tíma tíu stigum yfir í öðrum leikhluta en Höttur jafnaði í 39-39 þegar tvær og hálf mínúta var til leikhlés. Njarðvík var aðeins sterkari á lokasprettinum og fór inn í hálfleik með 45-41 forskot.

Þriðji leikhluti var sá besti hjá Hetti, liðið var 57-63 yfir þegar fjórar mínútur voru eftir, en þá kom slæmur kafli hjá Hetti og Njarðvík komst í 73-66. Heimamenn voru loks 76-72 yfir eftir leikhlutann. Þeir gátu þakkað það Khalil Shabazz sem skoraði 17 stig í röð.

Höttur náði muninum nokkrum sinnum niður í 2-3 stig í síðasta leikhluta, en tókst aldrei að jafna. Þegar á leið dró aftur í sundum með liðunum og Njarðvík vann níu stiga sigur.

Það setti mark sitt á leikinn að fjöldi leikmanna lenti í villuvandræðum undir loks leiks. Hjá Hetti fóru þeir Nemanja Knezevic, Adam Eiður Ásgeirsson, Gustav Suhr-Jessen og Matej Karlovic af velli með fimm villur auk tveggja leikmanna Njarðvíkur.

Justin Roberts var stigahæstur Hattar með 27 en Obie Trotter skoraði 25. Bæði Nemanja Knezevic og Gustav Suhr-Jessen skoruðu yfir 10 stig. Það er líka ánægjulegt fyrir Hött að Matej Karlovic sé kominn af stað aftur, hann skoraði 8 stig, tók 5 fráköst og spilaði hálfan leikinn en hann hefur glímt við mikil meiðsli.

Staða Hattar í deildinni versnaði hins vegar þar sem Álftanes vann í gær. Þar með eru orðin fjögur stig upp úr fallbaráttunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar