Körfubolti: Höttur tapaði fyrir Keflavík eftir góða byrjun

Höttur tapaði fyrir Keflavík 112-98 í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gær. Hattarliðið fór vel af stað en Keflavíkurliðið tók yfir leikinn í seinni hálfleik.

Höttur leiddi í fyrsta leikhluta og var yfir eftir hann 23-29. Liðið var áfram í forustu fram í miðjan annan leikhluta, þegar Keflavík skoraði níu stig gegn tveimur á stuttum kafla. Höttur tók leikhlé og fékk í næstu sókn þriggja stiga körfu en Keflavík svaraði strax og var svo 60-53 yfir í hálfleik.

Keflavík náði fljótt meira en 10 stiga forskoti í þriðja leikhluta. Lengst af hafði liðið ekki yfirburði en aldrei var hætta á að Höttur saxaði á. Keflavík bætti við undir restina og var 93-76 yfir fyrir lokakaflann.

Í fjórða leikhluta fór forskot Keflavíkur yfir 20 stig. Höttur saxaði aðeins á í lokin. Þar munaði mest um framlag Gedeon Dimoke, sem skoraði 10 af síðustu 15 stigum liðsins.

Dimoke átti í gærkvöldi sinn langbesta leik fyrir Hött, skoraði alls 25 stig og hirti 11 fráköst. Meira mæddi á honum en áður þar sem Nemanja Knezevic lenti í villuvandræðum og spilaði aðeins tæpar 23 mínútur.

Obie Trotter skoraði 16 stig og Adam Eiður Ásgeirsson 15. Justin Roberts, sem átti stórleik fyrir viku, var langt frá því framlagi sem Höttur þarf á að halda frá honum, hitti 2/9 skotum úr teignum og 0/4 úr þristum. Með hann inn á var munurinn 23 stig, Keflavík í hag, langt umfram nokkurn leikmann Hattar þótt Roberts væri notaður sparlega eða í tæpar 26 mínútur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar