Knattspyrna: Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir tapaði á marki í uppbótartíma
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir lauk keppni í B deild Lengjubikars kvenna með 3-2 tapi gegn HK á laugardag. Tveir nýir spænskir leikmenn komu við sögu í leiknum.Kristín Embla glímudrottning og íþróttamaður UÍA
Kristín Embla Guðjónsdóttir úr Val á Reyðarfirði varð á laugardag glímudrottning Íslands í þriðja sinn. Þá var hún einnig valin íþróttamaður UÍA á þingi sambandsins í Neskaupstað í gær.Knattspyrna: Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir áfram í bikarnum
Lið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis vann í gærkvöldi Einherja 2-0 í fyrstu umferð bikarkeppni kvenna í knattspyrnu en liðin mættust í Fjarðabyggðarhöllinni.Fyrsta karatemót Breiðdælinga
Tíu krakkar kepptu um síðustu helgi undir merkjum Ungmennafélagsins Hrafnkels Freysgoða í Breiðdal á Íslandsmóti barna- og unglinga í karate. Þetta er í fyrsta sinn sem iðkendur félagsins keppa á landsvísu en karate hefur verið iðkað hjá félaginu í á annað ár.Blak: Tap á móti Aftureldingu
Í gær fór fram fyrri viðureign Þróttar Fjarðabyggð og Aftureldingar í úrvalsdeild kvenna, en keppt er um sæti í undanúrslitum. Leikurinn var spennandi og sveiflukenndur en lauk með 1-3 sigri Aftureldingar.
Tveir Austfirðingar Danmerkurmeistarar í blaki
Galdur Máni Davíðsson og Þórarinn Örn Jónsson, fyrrum leikmenn Þróttar Neskaupstað, urðu í síðustu viku danskir meistarar í blaki með liði sínu Marienlyst-Fortuna. Fyrr í vetur varð liðið danskur bikarmeistari.Fjórir af bestu vélsleðaköppum heims kepptu í Stafdal um liðna helgi
Lítill vafi getur leikið á að vegur og virðing snjókrosskeppna hér á Íslandi fer mjög vaxandi vel út fyrir steina landsins því fjórir af þeim allra bestu í sportinu tókust á við þá bestu hérlendis á Íslandsmeistaramótinu um liðna helgi í Stafdal.
Blak: Þróttur spilar heimaleiki að heiman
Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni í blaki er hafin. Karlalið Þróttar Fjarðabyggðar spilar gegn liði Vestra frá Ísafirði um sæti í undanúrslitum. Vegna þéttrar leikadagskrár neyðast liðin til að spila heimaleiki sína að heiman.