Með óbragð í munni

Guðjón Sveinsson skrifar:       Evra í dag, evra í gær og evra alstaðar. Þetta er söngurinn sem heyrist og þú lest í hinni blaðfáu veröld Íslendingsins. Hvur and... er þetta? Eru menn ekki komnir með óbragð í gopuna? Eru menn gersamlega viti firrtir, er um visst einelti að ræða eða  vita gagnslaust gorrop, til að gera sig gildandi í umræðunni?

evrpusambandi.jpg

Lesa meira

Krakkar eru flottir

Um helgina voru fjörtíu krakkar á aldrinum sjö til þrettán ára í skátaútilegu á Eiðum. Þau komu sér fyrir í sumarbústöðum með allt sitt dót, elduðu sjálf risaskammt af gómsætri kjötsúpu, fóru í langar gönguferðir og leystu allskyns þrautir, ásamt því að syngja og skemmta sér saman.

krakki2.jpg

Lesa meira

Hellt úr skálum reiðinnar

Ferlegt er að hlusta á sérstakan ríkissaksóknara segja frá því hálfniðurlútan að embættið sé eiginlega ekki að gera nokkurn skapan hlut. Hvernig má það vera að þó þjóðin sé gjaldþrota vegna afglapa og blindu lýðræðislega kjörinna stjórnvalda og gleiðgosa sem finnst ekki tiltökumál að gambla með heila þjóð, er enginn tekinn í karphúsið?   (Leiðari Austurgluggans 26. mars sl.)

Lesa meira

Færðin betri

Í gær var talsverð ófærð á norðanverðu Austurlandi og lentu ökumenn í nokkrum vandræðum vegna fannfergis.

Fólksbifreið og jeppi skullu saman í snjógöngum á Fjarðarheiðinni, en til allrar mildi urðu ekki slys á fólki. Þá lenti jeppabifreið út af veginum um Jökuldal, þar sem mikil hálka var. Ökumaður og farþegar sluppu ómeidd en jeppinn skemmdist verulega. Vegagerðin segir nú hálku á Fjarðarheiði, Fagradal og á Oddsskarði og eru vegfarendur hvattir til að aka með aðgát.

fagridalur4.jpg

Innlit í líf útlendings á Íslandi

Góðan dag.

Til að byrja með langar mig að kynna sjálfan mig. Nafn mitt er Igor. Ég er frá Slóvakíu og hef búið hartnær þrjú ár á Íslandi. Á þeim tíma hef ég upplifað ýmislegt sem mig langar að deila með ykkur.

Lesa meira

Ófært og veður fer versnandi

Það er enn vetur á ísa köldu landi þrátt fyrir að nokkrir hugrakkir tjaldar hafi tyllt sér niður á Austurlandi sem fyrstu vorboðar ársins. (Leiðari Austurgluggans 12. mars sl.)

Lesa meira

Formaðurinn fremstur í Borgarahreyfingunni

Herbert Sveinbjörnsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, leiðir framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Hjálmar Hjálmarsson, leikari frá Dalvík, er í öðru sæti. Listinn var birtur í dag.

 

Lesa meira

Hag- ræða

Andrés Skúlason skrifar:    Öllu má nafn gefa, en svonefnd hagræðing hefur verið lausnarorð um langt skeið og fyrirmönnum ýmsum þótt gott að grípa til þessa hugtaks þegar á hefur þurft að halda, til að sannfæra fólkið í landinu um nauðsyn þess að hrúga þjónustu, framleiðslu, svo ekki sé talað um fólkinu sjálfu, saman á fáa útvalda staði.

Lesa meira

Múlaþing komið út

Múlaþing, 35. hefti 2008-9, er komið út. Ritstjórar eru Arndís Þorvaldsdóttir og Jóhann G. Gunnarsson. Arndís hættir nú sem ritstjóri eftir farsæl störf að Múlaþingi síðustu árin. Rannveig Þórhallsdóttir kemur í hennar stað og mun starfa ásamt Jóhanni sem ritstjóri. Að vanda er fjölbreytt efni í ritinu og höfundar fjórtán talsins. Forsíðu Múlaþings prýðir athyglisvert málverk eftir Sigurlaugu Stefánsdóttur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.