Austurland og ESB
Málþing á vegum Tengslanets austfirskra kvenna um kosti og galla ESB-aðildar Íslands verður haldið á Hótel Héraði, Egilsstöðum kl. 14-17 nú á laugardag. Ýmsum hliðum aðildar verður velt upp og skoðað hvaða áhrif hún myndi hafa á Austurland. Málþingið er öllum opið.
Tryggvi Þór sækist eftir 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokki í NA-kjördæmi
Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór er 46 gamall, fæddur og uppalinn í Neskaupstað. Hann starfar nú sem prófessor við Háskólann í Reykjavík. Hann var um skeið efnahagsráðgjafi forsætisráðherra og forstjóri fjárfestingabankans Askar Capital. Í 11 ár veitti hann Hagfræðistofun Háskóla Íslands forstöðu. Þá hefur Tryggvi Þór hefur verið ráðgjafi í efnahagsmálum fyrir stjórnvöld í ýmsum löndum og hjá fyrirtækjum, stofnunum og alþjóðasamtökum, m.a hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Tryggvi Þór er með doktorspróf í Hagfræði frá Háskólanum í Árósum.
Björgvin Valur vill 5.-6. sæti hjá Samfylkingu í Reykjavík
Björgvin Valur Guðmundsson býður sig fram í 5.- 6. sæti í Reykjavík. Hann segist í tilkynningu hafa ákveðið að gefa kost á sér í 5.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar. „Þrátt fyrir að vera búsettur á Stöðvarfirði býð ég mig fram í Reykjavík og vil með því undirstrika nauðsyn þess að allt landið verði eitt kjördæmi," segir Björgvin Valur.
Flokkarnir og lýðræðið
Pétur Guðvarðsson skrifar: Stundum er því haldið fram að ríkisstjórnin hafi Alþingi í vasanum, að Alþingi sé ekki annað en afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórnina, hún ráði öllu, af því að Alþingi samþykkir allt sem ríkisstjórnin leggur fyrir það.Benedikt sækist eftir forystusæti hjá Samfylkingunni í NA kjördæmi
Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri, býður sig fram í 1. til 2. sæti hjá Samfylkingunni í Norðausturkjördæmi.
Kristján Þór sækist eftir 1. sæti
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Kristján Þór skipaði 1. sæti á lista flokksins í kosningunum 2007.
Ingunn Snædal sækist eftir 4.-5. sæti í forvali VG
Ingunn Snædal býður sig fram í 4.-5. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi sem fram fer 28. febrúar næstkomandi.
Hrafnkell Lárusson sækist eftir 5.-6. sæti hjá VG í Norðausturkjördæmi
Hrafnkell Lárusson býður sig fram í 5-6 sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi sem fer fram 28. febrúar næstkomandi.