Þegar við hlökkum ekki til
Hann nálgast okkur óðfluga, þessi desembermánuður, með öllu sem honum fylgir. Verslanirnar eru þegar farnar að fyllast af alls konar jóladóti, seríuglöðustu nágrannarnir eru búnir að stinga í samband og bráðum verður varla hægt að kveikja á útvarpi öðruvísi en að heyra Sniglabandið syngja um jólahjól.Af litlu tísti verður oft mikið brjál
Gísla Marteini Baldurssyni tókst að fá alla landsbyggðina, og blessunarlega fleiri, upp á móti sér með færslu á Twitter þar sem hann spurði hvort ekki hefði verið nær að gefa hverjum íbúa Norðfjarðar 10 milljónir króna og flytja í borgina fremur en byggja snjóflóðavarnagarða.Hei! Zú! Ég er að tala við þig*
Undanfarna daga hafa hundruð Íslendinga skráð sig í félag zúista á Íslandi. Þegar ég sá fyrst fréttir af þessu býst ég við að mér hafi fyrst orðið á að spyrja, eins og flestum Íslendingum, hvað í ósköpunum eru zúistar?Ég er sek
Átakið #lítumupp hefur fangað huga minn síðustu daga, en þar opnaði 19 ára menntskælingur umræðuna um yfirgengilega netnotkun almennings.Snjóflóðavarnir fyrir ofan Neskaupstað
Nú styttist í enn frekari framkvæmdir við snjóflóðavarnargarða fyrir ofan Neskaupstað. Búið er að reisa mikla garða fyrir ofan innbæinn og miðbæinn en hinn nýji garður er til að verja útbæinn. Þá verður allur kaupstaðurinn kominn undir varnargarð. Flestum kann að þykja eðlilegt að ég sem bý í efsta húsi bæjarins í útbænum ætti að gleðjast yfir því að 2,5 milljörðum verði varið í að verja nágranna mína og mig og mína fjölskyldu fyrir snjóflóðum. En svo er ekki. Ég hugsa til þess með hryllingi að hið mikla rask sem átt hefur sér stað fyrir ofan stóran hluta bæjarins í mörg ár haldi áfram.Þungir þankar: Dreift eignarhald
Mjög er því nú á lofti haldið af æðstu ráðamönnum að mikilvægt sé að lánastofnanir þær sem nú eru til sölu komist í það sem þeir kalla „dreifða eignaraðild".Af því tilefni er rétt að rifja upp söguna.