Hringvegurinn lokaður í Berufirði
Hringvegurinn í Berufirði er lokaður þar sem vatn og aur hafa flætt yfir hann við Fossá. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að tæki séu á staðnum og verði vegurinn opnaður eins fljótt og kostur sé á.„Ég ætlaði aldrei að verða sjómaður“
Borgfirðingurinn Eiríkur Gunnþórsson byrjaði að stunda sjóinn með föður sínum þegar hann var tólf ára gamall. Framtíðin var endanlega ráðin þegar hann valdi frekar að fara á vertíð á Höfn fremur en í skóla eftir fermingu. Eiríkur rær enn en telur að sjómannsferillinn sé orðinn stuttur í annan endann.Flokkarnir velja framboðsleiðir: Píratar ríða á vaðið
Píratar verða að byrja að stilla upp framboðslista í Norðausturkjördæmi en prófkjör flokksins hefst um helgina. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin velja aðferð við val á listum um helgina. Líklegast er að flestir flokkar stilli upp vegna tímahraks.Hækkaði í ánni um 20 sentímetra á klukkutíma - Myndir
„Hér eru allir vegir að fara í sundur,“ segir Eiður Ragnarsson frá Bragðavöllum í Hamarsfirði. Þar hefur verið úrhellisrigning frá því í gærkvöldi og mikill vöxtur í öllum ám.BYKO lokar á Reyðarfirði: Breytt landslag í verslun og þjónustu
Fimm af sex starfsmönnum BYKO á Reyðarfirði var í gær sagt upp vegna fyrirhugaðrar lokunar verslunar. Forstjóri fyrirtækisins segir ástæðuna breytt landslag í verslun og þjónustu vegna tækniframfara og aukinnar netverslunar.Skemmdir eftir mikla vatnavexti um helgina
Úrhellisrigning víða um Austurland á laugardag olli miklum vatnavöxtum í fjórðungnum. Rafmagnsstrengur fór í sundur í Fljótsdal og aurskriða lokaði hringveginum í Berufirði um tíma.„Mannvirki sem skipta okkur miklu“ - Myndir
Snjóflóðavarnagarðarnir undir Tröllagili, ofan Neskaupstaðar, voru formlega vígðir af umhverfisráðherra í gær. Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir mannvirkin skipta íbúa Neskaupstaðar miklu máli.
Vegurinn opinn í Berufirði
Búið er að opna veginn við Fossá í Berufirði sem lokaðist snemma í morgun þegar vatn og aur flæddu yfir hann.Fluttur með sjúkraflugi eftir útafakstur á Háreksstaðaleið
Karlmaður um tvítugt var fluttur meðvitundarlaus með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir bílveltu á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær.