Tara Ösp Tjörvadóttir, einn af forsprökkum herferðarinnar #égerekkitabú segir aðstæður geðsjúkra á Austurlandi erfiðar. Á svæði vanti meira af sérhæfðu starfsfólki í heilbrigðisþjónustuna.
Þrír voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað eftir alvarlegt umferðarslys fyrir botni Eskifjarðar í morgun þar sem tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman.
Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur gengið frá kaupum á danska uppsjávarveiðiskipinu Gitte Henning sem verður nýr Beitir NK. Núverandi Beitir gengur upp í kaupin.
Fulltrúar Mannvirkjastofnunar koma austur innan til tíðar til að ræða málefni Brunavarna á Austurlandi. Margvíslegar athugasemdir komu fram við aðbúnað slökkviliðsins í úttekt stofnunarinnar. Forstjórinn segir engin stórtæk úrlausnarefni bíða en þó þurfi formlega að klára málin.
Fræðadagur Búnaðarsambands Austurlands og Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins verður haldin í Valaskjálf næstkomandi laugardag auk þess sem bændahátíðin verður endurvakin um kvöldið.
Fljótsdalshérað er talið eitt verst stadda sveitarfélag landsins í nýrri úttekt tímaritsins Vísbendingar á draumasveitarfélaginu. Úttektin byggist einkum á tölum úr ársreikningum.
Gestir sem heimsækja Austurland heim nefna Egilsstaði sem það neikvæðasta við fjórðunginn. Einkum er horft til þjónustunnar á staðnum. Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði telja mikilvægt að þjónustuveitendur axli sína ábyrgð.
Valdimar O. Hermannsson, rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands í Neskaupstað, hefur verið ráðinn rekstarstjóri Brammer á Austurlandi og hefur störf þar eigi síðar en 1. janúar næstkomandi.
Átta umsóknir bárust um stöðu minjavarðar Austurlands en umsóknarfrestur rann út í síðustu viku. Minjavörður hefur umsjón og eftirlit með minjum á svæðinu frá Vopnafirði að Djúpavogshreppi.
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs óttast að tillögur meirihluta fræðslunefndar um sparnað í fræðslumálum feli í sér óásættanlega þjónustuskerðingu. Útlit er fyrir að tillögurnar gangi til baka að hluta. Bæjarfulltrúar meirihlutans segja nefndina hafa unnið gott starf við erfiðar aðstæður.