Svissneski maðurinn sem lést í sunnanverðum Seyðisfirði í síðustu viku hét Pascal René Danz Lunn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í dag.
Sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps hafa samþykkt að selja húsnæði Hallormsstaðaskóla. Kaupandi er 701 hotels ehf., en það félag á og rekur meðal annars Hótel Hallormsstað, Hótel Valaskjálf og veitingastaðinn Salt á Egilsstöðum.
Hinn 15. október nk. mun Freysteinn Bjarnason láta af störfum framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað sökum aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2005. Við starfinu tekur Guðmundur Rafnkell Gíslason sem að undanförnu hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.
Engar umsóknir bárust um 40% stöðu hjúkrunarfræðings eða sjúkraliða á Borgarfirði eystri áður en umsóknarfresturinn rann út fyrir viku síðan. Því er ekki útlit fyrir að neinn ríkisstarfsmaður verði starfandi á Borgarfirði eystri frá næstu mánaðamótum. Þetta kom fram á vef RÚV fyrr í dag.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar áréttaði á fundi sínum í gær fyrri stefnu sveitarfélagsins, um að það væri tilbúið til að taka á móti flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld.
Augnlæknaþjónusta mun verða í boði í Fjarðabyggð í kringum mánaðarmótin september-október. Þetta verður í fyrsta sinn í meira en ár sem augnlæknaþjónusta verður í boði í sveitarfélaginu.
Óhætt er að fullyrða að óvíða á landinu er matjurtarækt stunduð í minna mæli en á Austurlandi, enda vantar mikið upp á að slík ræktun í landsfjórðungnum komist nálægt því að uppfylla vaxandi neysluþörf heima fyrir, þó svo að góðar aðstæður til slíkrar framleiðslu séu hér víða fyrir hendi.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar samþykkti á síðasta fundi sínum að úthluta sveitarfélaginu lóð að Þiljuvöllum í Neskaupstað með það fyrir augum að flytja þangað Gamla Lúðvíkshúsið.