Atkvæðagreiðslu um kjarasamning AFLs og RSÍ við Alcoa Fjarðaál lauk í gær, þriðjudag, og var hann samþykktur með miklum yfirburðum. Á kjörskrá voru 393 starfsmenn og samþykktu 90% þeirra sem greiddu atkvæði um samninginn, en hann gildir til fimm ára, frá 1. mars 2015 að telja. Alls greiddu 180 starfsmenn atkvæði eða 45,8%.
Erfitt er að meta áhrif innflutningsbanns Rússa á íslenskan fisk á Austurland en sjávarútvegsfyrirtæki á svæðinu hafa átt í miklum viðskiptum við Rússa. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segir bannið koma harðar niður á Íslendingum en flestum öðrum þjóðum og ekki sé hlaupið að því að finna aðra markaði.
LungA-skólinn á Seyðisfirði hefur göngu sína á ný í september, en skólinn hefur starfað í einn heilan vetur. Námsfyrirkomulaginu svipar til norrænna lýðháskóla og er boðið upp á 12 vikna námskeið, bæði á haustönn og vorönn. Austurfrétt heyrði í Jonatan Spejlborg, einum aðstandenda skólans og spurði hann út í veturinn framundan.
Snæfellsvegur inn að Snæfellsskála opnaði loks fyrir akandi umferð þann 29. júlí síðastliðinn. Það er umtalsvert seinna en fyrri ár og má rekja orsökina til mikillar kuldatíðar undanfarna mánuði. „Þetta er held ég bara seinasta opnunin í manna minnum. Það var búið að vera svo mikið af snjó og aurbleytu að það var ekkert hægt að keyra hingað áður,“ segir Pétur Halldórsson, landvörður í Snæfellsskála í samtali við Austurfrétt.
Karlmaður á sextugsaldri var nýverið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Austurlands fyrir fjárdrátt. Hann seldi bifreið úr landi sem var í eigu fjármögnunarfyrirtækis.
Slökkvilið Fjarðabyggðar notaði tækifærið í gær til æfinga þegar tvö sjóhús við veginn niður Hólmaháls voru brennd þar sem þau voru í línu nýs vegar sem gerður verður að Norðfjarðargöngum. Slökkviliðsstjórinn segir hafa verið gott að fá æfingu við raunverulegar aðstæður.
Reyðfirðingurinn Aron Leví Beck vinnur þessa dagana að rannsókn, þar sem forsendur fyrir því að starfrækja svokallað sameldi (e. aquaphonics) við hlið sundlauga á Íslandi eru kannaðar. Aron Leví er byggingafræðingur og meistaranemi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann leysti af hjá hitaveitunni í Fjarðabyggð síðastliðið sumar.
Lokað verður fyrir heita vatnið á veitusvæði Hitaveitu Egilsstaða og Fella austan Lagarfljóts eftir hádegi í dag og fram á kvöld vegna tengivinnu við stofnlögn.
Konur eru nú í fyrsta sinn í meirihluta í hafnarstjórn Fjarðabyggðar. Í kjölfar brotthvarfs Eiðs Ragnarssonar úr bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók Pálína Margeirsdóttir sæti hans í hafnarstjórn og því eru nú þrjár konur í hópi fimm stjórnarmanna.