Höttur hóf tímabilið í 1. deildinni í körfuknattleik með 78-72 sigri á Ármanni í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum í gærkvöld. Leikurinn var æsispennandi en Höttur var undir nánast allan leikinn en náði að snúa taflinu sér í hag á lokamínútunum.
Í gær skrifaði Sigurður Donys undir tveggja ára samning við Hött. Donys lék með Einherja á síðustu leiktíð, þar lék hann 15 leiki og skoraði 14 mörk. Donys þykir gríðarlega sterkur leikmaður og kemur til með að styrkja lið Hattar mikið.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Jafnframt var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Þá var verð á karfa hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. október 2009.
Golfklúbburinn á Eskifirði er gjaldþrota. Svæðisútvarpið á Austurlandi sagði frá því í gær að myntkörfulán sem tekið var til að fjármagna framkvæmdir við uppbyggingu golfvallarins á Eskifirði hefði sligað reksturinn í kjölfar hrunsins í október í fyrra. Óskað hefur verið eftir að klúbburinn verði tekinn til gjaldþrotaskipta.
Veggjakrotara fóru hamförum utan á veggjum húsnæðis Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum um síðustu helgi. Í krotinu koma fram kynþáttafordómar af svæsnasta tagi og blasir óhroðinn meðal annars við þeim útlendingum sem læra íslensku hjá Þekkingarnetinu. Þykjast menn vita hverjir voru þarna á ferð og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.
Reyðarfjarðarkirkja er nú prýdd bleikum ljósum í tilefni af átaki Krabbameinsfélags um brjóstakrabbamein. Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi eins og gert hefur verið síðan árið 2000, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.
Eldur kviknaði í bifreið sem stóð inni á verkstæði á
Þórshöfn í dag og er hún talin gjörónýt. Mbl.is greinir frá. Að sögn lögreglu á Þórshöfn tók
vegfarandi eftir því að reyk lagði út um glugga verkstæðisins og lét eiganda
strax vita en enginn var í húsinu um það leyti.
Í dag er Alþjóðadagur kennara haldinn hátíðlegur um allan heim. Að forgöngu UNESCO er 5. október sérstaklega helgaður kennurum og þennan dag nota þeir samtakamátt sinn til að tryggja að hugað sé að þörfum barna fyrir menntun í nútíð og framtíð. Um leið er 5. október tákn þess að við kunnum að meta mikilsvert framlag kennara til menntunar, framþróunar samfélaga og þroskunar einstaklinga. Yfirskrift dagsins í ár er þessi: Sköpum framtíð: Fjárfestum í kennurum án tafar.