Þórólfur Vigfússon fæddist á bænum Kirkjubóli í Vaðlavík árið 1932. Hann fluttist 1963 til Eskifjarðar og hefur búið á Reyðarfirði frá árinu 1968. Þórólfur er draumspakur og tekur drauma alvarlega. Hann hefur til dæmis dreymt fyrir forsetakjöri. Draum þann er hér fer á eftir dreymdi Þórólf aðfararnótt 2. ágúst 2008.
Lið Kópavogs sigraði lið Héraðsbúa með 69 stigum gegn 62 í úrslitakeppni Útsvars í Sjónvarpi í kvöld. Lið Fljótsdalshéraðs fór hægt af stað en náði þó nokkurri viðspyrnu er leið á keppnina. Hún fór þó fyrir lítið. Liðið má þó vel við una að hafa náð svo langt í keppninni og tapa með aðeins sjö stiga mun. Nokkur fjöldi fólks var á Hótel Héraði í kvöld til að fylgjast með keppninni á breiðtjaldi.
XXIII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var sett á Hilton Nordica Hotel í Reykjavík í morgun. Halldór Halldórsson formaður sambandsins setti þingi. Í ræðu sinni fjallaði hann einkum um fjármál sveitarfélaga og viðbrögð þeirra við efnahagsvandanum. Hann ræddi þær launalækkanir sem sveitarfélögin hafa orðið að grípa til og hvatti til að fundnar verði leiðir til þess að lækka kostnað við rekstur grunnskóla í samráði við kennara.
Nýlega voru samþykkt lög sem heimila neytendum að taka út allt að einni milljón króna af séreignarsparnaði sínum. Lögunum var breytt í meðförum Alþingis á þann veg að nú er ráðherra heimilt að ákveða með reglugerð heimild vörsluaðila (bankar, lífeyrissjóðir) til að innheimta sérstakt gjald vegna umsýslu við útgreiðslu þessa sparnaðar. Þessi breyting kom ekki til skoðunar Neytendasamtakanna eða annarra umsagnaraðila, þar sem henni var bætt inn í eftir að frumvarpið hafði verið sent til umsagnar.
Fallið hefur verið frá lögreglurannsókn á máli Hannesar Sigmarssonar yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar. Hann var leystur frá störfum um miðjan febrúar þegar Heilbrigðisstofnun Austurlands afréð að láta rannsaka vinnulag og reikninga hans hjá lögreglu. Lögreglan telur gögn málsins ekki þessleg að unnt sé að byggja ákæru á þeim. Eskfirðingar fögnuðu og drógu fána að húni þegar fréttist af málalyktum.
Vetursetufuglar á Egilsstöðum virðast hafa það bærilegt þessar vikurnar. Þær upplýsingar fengust í Fóðurblöndunni í gær að þar væri búið að selja yfir þrjú tonn af fuglafóðri frá áramótum. Fóður er þar bæði selt laust og í 40 kílóa sekkjum, sem standa að sögn starfsmanna ekkert við í versluninni. Þá er mikil sala í eplum í verslunum enda fara sögur af fólki sem er með tugi silkitoppa og þrasta á sínum snærum og fá þau fersk epli til að naga daglega. Í gær hitti Austurglugginn konu sem er þegar búin að gefa snjótittlingum við hús sitt yfir áttatíu kíló af hveitifræi auk brauðs, fitu og ávaxta og var hún að kaupa þriðja 40 kg pokann frá því í janúar. Fuglarnir launa henni aö sögn með fögrum söng daginn út og inn.
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerð um makrílveiðar íslenskra skipa á þessi ári. Miðað er við að heildarafli á árinu fari ekki yfir 112.000 tonn, þar af 20.000 tonn á alþjóðlegu hafsvæði utan lögsögu ríkja. Fari aflinn yfir þetta magn mun ráðherra ákveða hvort gripið skuli til veiðibanns eða takmarkana. Þetta er svipað magn og veiddist í fyrra.
Heildarafli íslenskra skipa nam 99.648 tonnum í nýliðnum febrúar og var tæplega 16% meiri í tonnum talið en í sama mánuði árið 2008 þegar hann var 85.808 tonn. Sé aflinn metinn á föstu verði var hann 27% meiri í febrúar 2009 en í sama mánuði árið áður.
Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) skrifaði undir leikmannasamninga við þrjá leikmenn í dag og hefur tryggt sér einn enn að láni. Einnig var gerður nýr samningur við Landsbankann sem héldur áfram að vera einn af aðalstyrktaraðilum KFF. Merki bankans mun vera á búningum félagsins sem og öðru dreifingarefni.