Dvöl á Stöðvarfirði þýðingarmikil fyrir tónlistarferilinn
Írski tónlistarmaðurinn Con Murphy sendi nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem fengið hefur góðar viðtökur í heimalandinu. Útgáfutónleikar fyrstu stuttskífu hans voru haldnir á Stöðvarfirði þar sem hugmyndin að henni kviknaði.Lofar magnaðasta Dyrfjallahlaupi frá upphafi
Óhætt er að fullyrða að Dyrfjallahlaupið þetta árið verði það allra skemmtilegasta og stærsta sem haldið hefur verið segir Olgeir Pétursson, einn skipuleggjenda þessa þekkta fjallahlaups sem nú skal gera hærra undir höfði en nokkru sinni áður.
Ýmsir flytjendur heiðra fallinn félaga með gömlum slögurum
„Við eigum einhver 42 lög í handraðanum og svo látum við stemmninguna á staðnum bara ráða því hvað við tökum annað kvöld,“ segir Halldór Warén, einn liðsmanna hljómsveitarinnar Ýmsir flytjendur.
Skipti mestu að halda fulltrúanum
Miðflokkurinn í Múlaþingi hélt sínum eina fulltrúa í sveitarstjórn í kosningunum á laugardag sem þó voru erfiðar á landsvísu fyrir flokkinn.Helgin: Síðustu tónleikar Kammerkórsins undir stjórn Thorvald Gjerde
Kammerkór Egilsstaðakirkju kveður stjórnanda sinn, Thorvald Gjerde, með að flytja klassískast perlur á tónleikum á sunnudag. Útivist, danssýning, ný listsýning og íþróttir eru meðal þess sem eru í boði á Austurlandi um helgina.Nicoline frá Teigarhorni gert hátt undir höfði á nýrri sýningu
Nicoline Weywadt frá Teigarhorni í Berufirði, sem fyrst íslenskra kvenna lærði ljósmyndun, er gert hátt undir höfði á nýrri sýningu um konur í hópi frumkvöðla í norrænni ljósmundun sem opnar á Þjóðminjasafni Íslands á laugardag.Hlakkar til að standa aftur á sviðinu í Valaskjálf
Birna Pétursdóttir, leikkona frá Egilsstöðum, er meðal leikara í sýningu Þjóðleikhússins, Prinsinn, sem sýnd verður í Valaskjálf á fimmtudagskvöld. Birna, stóð þar síðast á sviði fyrir um tuttugu árum eða um svipað leyti og verkið gerist.Leita elds fyrir dreka í Fljótsdal
„Þarna er um tíu staði að ræða, það þarf að leysa gátu á hverri og einni stöð til að halda áfram og ég myndi segja að þetta henti fjölskyldum og börnum allt niður í sex ára aldur,“ segir Brynjar Darri Sigurðsson Kjerúlf, hönnuður.