Öskudegi breytt í Fjölgreindarleika á Reyðarfirði
Vegna færðar gegnu börn á Reyðarfirði ekki á milli fyrirtækja til að syngja og fá gotterí að launum, eins og venjan er í gær öskudag, heldur var slegið upp Fjölgreindarleikum í grunnskólanum.Vill lífga upp á bæjarbrag í Breiðdal með nýstárlegum flóamarkaði
„Mér finnst einmitt vanta eitthvað svona líf í marga þessa litlu bæi og vonandi getur þetta breytt því til batnaðar,“ segir Heiðdís Þóra Snorradóttir, hönnuður í Breiðdalsvík.
Freeride Festival tókst framar vonum
„Mér telst svona til að um 500 manns hafi í heildina komið að hátíðinni og þetta gæti ekki hafa tekist betur,“ segir Sævar Guðjónsson, forsprakki skíðahátíðarinnar Austurland Freesride Festival, sem lauk um helgina.
„Fjögurra daga stanslaust stuð framundan“
„Þær verða ekkert mikið skemmtilegri hátíðirnar hér austanlands, því get ég lofað,“ segir Sævar Guðjónsson, forsprakki Freeride hátíðarinnar sem fer fram um næstu helgi í þriðja skiptið.
Kenna fólki að takast á við kvíða og angist
„Með því að læra að skoða hugsanagang okkar getum við fengið aukinn skilning á líðan okkar og hegðun og sjáum betur tengslin þarna á milli. Ef við rekumst á óraunsæjar, neikvæðar eða óhjálplegar hugsanir þá getum við þar af leiðandi frekar breytt þeim og æft okkur í að hugsa á röklegri eða hjálplegri hátt,“ segir Sigurlín H. Kjartansdóttir, sálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA.)
Úr fjölmenni Paragvæ í fámenni Seyðisfjarðar
Með ljósmyndir og ljóð að vopni hyggjast þau Tesla Rivarola og Juanio Ivaldo Zaldivar reyna að lýsa þeim miklu umbreytingum sem felast í að flytja búferlum frá fjölmennu svæði í Suður-Ameríku í fámennið á Seyðisfirði á nýrri farandsýningu sem opnar síðar í þessum mánuði.
Stór stund í austfirsku tónlistarlífi á sunnudaginn
„Ég er jafn spennt og allir aðrir því ég hef ekki einu sinni heyrt verkið ennþá í neinni mynd með hljómsveitinni,“ segir Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tónskáld úr Fellabæ.