Björgvin Valur Guðmundsson býður sig fram í 5.- 6. sæti í Reykjavík. Hann segist í tilkynningu hafa ákveðið að gefa kost á sér í 5.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar. „Þrátt fyrir að vera búsettur á Stöðvarfirði býð ég mig fram í Reykjavík og vil með því undirstrika nauðsyn þess að allt landið verði eitt kjördæmi," segir Björgvin Valur.
Pétur Guðvarðsson skrifar: Stundum er því haldið fram að ríkisstjórnin hafi Alþingi í vasanum, að Alþingi sé ekki annað en afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórnina, hún ráði öllu, af því að Alþingi samþykkir allt sem ríkisstjórnin leggur fyrir það.
Ályktun starfsfólks Grunnskólans á Eskifirði samþykkt á fundi 18. febrúar.
Starfsfólk Grunnskólans á Eskifirði lýsir stuðningi við Hannes Sigmarsson yfirlækni Heilsugæslu Fjarðabyggðar og harmar þá stöðu sem komin er upp í samskiptum hans við yfirstjórn HSA.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Kristján Þór skipaði 1. sæti á lista flokksins í kosningunum 2007.
Málþing á vegum Tengslanets austfirskra kvenna um kosti og galla ESB-aðildar Íslands verður haldið á Hótel Héraði, Egilsstöðum kl. 14-17 nú á laugardag. Ýmsum hliðum aðildar verður velt upp og skoðað hvaða áhrif hún myndi hafa á Austurland. Málþingið er öllum opið.
Erna Friðriksdóttir frá Egilsstöðum er nú við æfingar og keppni í Winter Park í Colorado en hún kom fyrst á námskeið IF og VMÍ árið 2000. Hún fékk mikinn áhuga á skíðum, fékk stuðning til að kaupa skíðasleða og faðir hennar lærði á skíði til að geta fylgt henni eftir. Erna hefur nú náð þeim árangri að hún æfir og keppir með landsliði USA í Winter Park en samstarf ÍF, VMÍ og NSCD í Winter Park felst m.a. í að aðstoða fatlað íslenskt skíðafólk sem vill æfa erlendis.