Stöðum sem selja tóbak hefur fækkað stöðugt á Austurlandi undanfarin fimm ár. Þetta kemur fram í ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir síðasta ár.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir forstjóri Norrænu segir að mjög strangir verkferlar séu virkjaðir ef COVID smit finnst í ferjunni. Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði í dag. Tveir af farþegum ferjunnar eru með COVID og eru í einangrun um borð.
Um það bil 40 ár eru nú frá því að lögð voru fyrstu drög að sérstöku skógræktarátaki á Fljótsdalshéraði fyrir atbeina ríkisins og með þátttöku bænda og annarra landeiganda. Verkefnið fékk nafnið Héraðsskógar. Áður hafði verið stofnað til nytjaskógaverkefnis á Upphéraði sem nefndist Fljótsdalsáætlun og hófst með gróðurssetningu árið 1970. Þá eru á svæðinu þjóðskógar og fjöldi skógarteiga skógræktarfélaga ásamt náttúrulegum birkiskógum sem finna má víða um landshlutann.
Tvö fyrirtæki á Austurlandi, Nielsen restaurant og Sauðagull hafi verið valin af Icelandic Startups til að taka þátt í viðskiptahraðlinum „Til sjávar og sveita - frá hugmynd í hillu". Tíu sprotafyrirtæki voru valin en verkefnið leggur áherslu á sjálfbærar lausnir í landbúnaði og sjávarútvegi. Alls sóttu yfir 70 fyrirtæki um þátttöku í verkefninu.
Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir skoðanakönnun í aðdraganda sveitarstjórnakosninga í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi þann 19. september.