Góður árangur fimleikafólks á fyrsta móti vetrarins
Fimleikadeild Hattar fór á fyrsta mót vetrarins í 1. deild fimleikasambands Íslands um síðustu helgi, þetta var haustmót FSÍ sem haldið var á Selfossi og voru skráðir til leiks 640 keppendur.
Fimleikadeild Hattar fór á fyrsta mót vetrarins í 1. deild fimleikasambands Íslands um síðustu helgi, þetta var haustmót FSÍ sem haldið var á Selfossi og voru skráðir til leiks 640 keppendur.
Leiknismenn buðu upp á laglegan Breiðholtsbúgí þegar þeir unnu öruggan sigur á lélegum Hattarmönnum í körfuknattleik á Egilsstöðum í kvöld. Það er skemmst frá því að segja að heimamenn voru skrefi á eftir gestunum allan leikinn og þrátt fyrir athyglisverðar tilraunir til að snúa gjörtöpuðum leik sér í hag á síðustu mínútu leiksins var niðurstaðan sú að það er Höttur sem situr einn á botni 1. deildar. Liðið er nú stigalaust eftir þrjá leiki.
Heimir Þorsteinsson, sem þjálfar karlalið Fjarðabyggðar í annarri deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð með Hauki Ingvari Sigurbergssyni, segir það góða þróun að fá yngri mann inn í þjálfunina. Hann reiknar ekki með miklum breytingum á leikmannahópnum þótt alltaf færi sig einhverjir leikmenn um set þegar lið fari á milli deilda.
Heimir Þorsteinsson og Haukur Ingvar Sigurbergsson þjálfa karlalið Fjarðabyggðar í knattspyrnu. Páll Guðlaugsson heldur ekki áfram með liðið sem féll úr fyrstu deild í haust. Útlit er fyrir að markvörðurinn Srdjan Rajkovic yfirgefi félagið.
Fyrsta mótið á nýjum strandblakvelli í Neskaupstað var haldið á laugardag. Sandurinn í völlinn kom alla leið frá Póllandi. Sama dag spilaði kvennalið félagsins sinn fyrsta deildarleik í vetur.
Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum stendur í kvöld fyrir atburði sem þau kalla "Jólabingó" á hátíðarsal skólans. Fátítt er að slíkir atburðir séu haldnir í september. "Við erum bara að skáka öðrum með að vera fyrr á ferðinni," segir Jóhann Atli Hafliðason, stjórnarmaður í NME.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.