AFL starfsgreinafélag ætlar ekki að afhenda Starfsgreinafélagi Íslands samningsumboð félaga sinna vegna kjarasamninga launanefndar sveitarfélaga, eins og venja hefur verið. AFL er nú þriðja fjölmennasta verkalýðsfélag landsins.
Bikarmeisturum Þróttar mistókst um helgina að tryggja sér sæti í
undanúrslitum kvenna í blaki. Liðið á enn von en byrjaði vörnina illa í
forkeppninni um helgina. Körfuknattleikslið Hattar tapaði fyrsta leik
vetrarins.
AFL starfsgreinafélag hlaut nýverið Símenntarverðlaun Þekkingarnets Asutrulands árið 2008 fyrir markvissa endurmenntunarstefnu félagsmanna sinna. Félagið hefur boðið upp á fjölda námskeiða fyrir félagsmanna og hvatt þá til að afla sér frekari menntunar.
Afli í austfirskum löndunarhöfnum minnkaði um tíu prósent í september
samanborið við sama mánuð í fyrra. Alls var landað 15.419 tonnum á
Austfjörðum, samanborið við 17.222 tonn í fyrra samkvæmt tölum frá
Hagstofunni.
Skiptum á búi Tærgesen ehf., sem áður rak gistiheimilið Tærgesen á
Reyðarfirði, er lokið. Lýstar kröfur í búið voru 87,5 milljónir en
ekkert fékkst upp í þær.
AFL starfsgreinafélag vill að félagsmenn þess sem missi vinnuna vegna
gjaldþrota fyrirtækja njóti sömu réttinda og starfsmenn þeirra banka
sem orðið hafa gjaldþrota.Vernd ríkissjóðs gagnvart bankastarfsmönnum sé talsvert frábrugðin því sem til þessa hafi viðgengist á vinnumarkaði.
Sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað stæðu upp úr ef öll
sveitarfélög á Austurlandi yrðu sameinuð í eitt. Líklegast er að
miðstöð stjórnsýslunnar yrði skipt milli þeirra eða sett í það stærra,
Fjarðabyggð. Þetta kom fram í máli Grétars Þórs Eyþórssonar, prófessors
við Háskólann á Akureyri, sem hélt fyrirlestur á þingi Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi um mögulegt eitt stórt sameinað
sveitarfélag á Austurlandi.