Lýðræði. Þetta fallega gagnsæja orð. Þýðir einfaldlega, fólkið ræður og lýðræðisskipulag á að tryggja þjóð sem býr við það að vilji meirihlutans nái fram að ganga.
Miðhálendisþjóðgarður er ekki vond hugmynd. Þjóðgarður er heldur ekki hugmynd sem varð til fyrir skemmstu hér á landi. Samt er látið eins og hér sé verið að finna upp hjólið og stjórnvöld virðast ætla að gera öll mistökin í bókinni áður en við finnum þessu mikilvæga verkefni réttan farveg.
Þessi ríkistjórn hefur sett staðfest heimsmet í skerðingum á ellilífeyrisþega og öryrkja. Þetta hefur komið fram í rannsóknum prófessors Stefáns Ólafssonar fyrir stéttarfélagið Eflingu.
Flestir hér á landi stunda eða hafa stundað einhverjar íþróttir eða tekið þátt í ýmiskonar tómstundarstarfi, t.d. skátunum, ýmsum boltagreinum, æfa á hljóðfæri, dans og fleira.
Í þættinum Saga og samfélag á Hringbraut 3. september síðastliðinn kom Arnar Sigurðsson víninnflytjandi í viðtal og ræddi landbúnaðarmál. Margt var þar í hans tali umhugsunarvert og gott en þó vantaði líka að mínu mati, mikið á hans nálgun á efnið.
Höfundur: Einar Brynjólfsson og Rúnar Gunnarsson • Skrifað: .
Í nýlegri skýrslu Byggðastofnunar kemur fram að tækifæri til menntunar skipti verulegu máli fyrir byggðafestu. Algengt er að þau sem flytja af landsbyggðunum til að sækja háskólamenntun til höfuðborgarsvæðisins snúi ekki aftur í heimahagana að námi loknu.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í Múlaþingi á síðasta ári lagði Sjálfstæðisflokkurinn mikla áherslu á tækifærin sem fælust í fullnýtingu Egilsstaðaflugvallar hvort tveggja til farþegaflutninga og útflutnings á ferskvöru svo sem fiski og landbúnaðarvöru.
Nýtt kerfi almenningssamgangna hóf göngu sína í Fjarðabyggð í síðustu viku en með því er stigið stórt skref fram á við í að tengja enn betur saman okkar víðfeðma sveitarfélag . Mig langar því á þessum tímamótum að óska íbúum Fjarðabyggðar til hamingju með þennan merka áfanga.
Árið er 1939. Svörtu foksandarnir sem fylgja Jökulsá á Fjöllum og þekja nyrsta hluta Kelduhverfis á stóru svæði, eru smám saman að gleypa í sig landið. Bændur eru ráðalausir og reyna hvað þeir geta að verja tún sín og lönd, með litlum árangri.