07 Stjórnarfundur 7 ágúst, 2003

Stjórnarfundur 07. 08. 2003. búið
   Fundurinn var haldinn á Hótel Héraði Egilsstöðum og hófst kl. 17:00.
Mættir: 
            Guðrún Katrín
             Jörundur
             Kristinn
             Sigfús
             Hrafnkell mætti kl. 17:30.
 
Formaður Guðrún Katrín, setti fund og stjórnaði honum.  Hrafnkell ritaði fundargerð.
 
Gengið var til dagskrár:
 
1. Aðalfundur 2003.
Samþykkt að halda aðalfund um mánaðarmót september, október.  Fundarstaður Hótel Hérað Egilsstöðum.
Rætt um að fá Helga Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóra til að flytja erindi um jarðgöng á Austurlandi.  Sigfús tók að sér að ræða við Helga.
Guðrún Katrín upplýsti að þar sem hún flyst tímabundið af svæðinu, þá muni hún ekki taka að sér formennsku á næsta ári.  Rætt um að gera tillögu um Sigfús Vilhjálmsson sem formann  næsta ár.
 
2.  Önnur mál.
Stjórnin samþykkti að leita eftir því að fulltrúi SAMGÖNG einn eða fleiri fái seturétt  á Samgönguráðstefnu SSA sem fyrirhugað er að halda í október n.k. Guðrúnu var falið að koma erindi til SSA.
 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10.
 
Hrafnkell A. Jónsson fundarritari.

 

04 Stjórnarfundur 10 október, 2002

 

3. stjórnarfundur 10.10.2002

Haldinn á Foss Hótel Reyðarfirði  kl.16:30

 

1. Tekið fyrir bréf frá Guðrúnu Sigríði Knútsdóttur nemanda á þriðja ári í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Guðrún Sigríður hefur áhuga á því að gera einhverskonar úttekt á jarðgöngunum í BA ritgerð sinni, og óskar  eftir samstarfi  við  samtökin.
Stjórn samtakanna fagnar þessari beiðni Guðrúnar og er reiðubúin að veita henni alla þá aðstoð sem hún getur ef af þessu verður.


2. Á fyrsta stjórnarfundi samtakanna í júlí s.l. var ákveðið að taka engin gjöld af félagsmönnum. Eigi samtökin hins vegar að geta  kynnt hugmyndir sínar fyrir almenningi er ljóst að einhverjir fjármunir þurfa að koma til. Því var ákveðið  að sækja um útgáfu og kynningarstyrk til bæjarfélaga og fyrirtækja sem hagsmuna eiga að gæta varðandi jarðgöng á Mið – Austurlandi.
Ýmsar leiðir til kynningar voru ræddar. Auk blaðagreina o.þ.h. ákvað stjórnin að kynna hugmyndir samtakanna í Dagskránni sem prentuð er í 5000 eintökum og fer um allt Austurland og jafnvel víðar.
Til að halda utan um fjármál samtakanna var Jörundur Ragnarsson skipaður gjaldkeri.

3. Ræddar voru ýmsar jarðgangahugmyndir. Stjórnarmenn voru sammála um að kanna þyrfti hvort hagkvæmara er að bora göng frá  Seyðisfirði til Eskifjarðar með afleggjurum  til Mjóafjarðar, Neskaupsstaðar og upp í Slenjudal.
Með þessari hugmynd þarf einungis að gera 5 gangamuna í stað 8 auk þess sem talið ódýrara að bora göng heldur en sprengja.

4. Í samtökunum eru nú u.þ.b. 300 – 400 manns. Samtökin eru einungis fjögra mánaða gömul, þetta segir okkur að; að meðaltali hafa  u.þ.b. 100 manns skráð sig í samtökin á mánuði. Stjórnin vill að  í framtíðinni geti fólk skráð sig í samtökin á netinu.

Fleira var ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 18:00
                                                               Fundarritari
 
                                                                              Guðrún Katrín  Árnadóttir
     

01 Stofnfundur 29 júní, 2002

Dagskrá:


1.      Fundarsetning
2.      Fundarstjóri kosinn
3.      Ritari skipaður
4.      Frummælendur:
-         Jónas Hallgrímsson
-         Kristinn V. Jóhannsson
-         Guðrún Katrín Árnadóttir
-         Einar Þorvarðarson, vegagerð ríkisins
-         Guðmundur Valur
5.      Umræður
6.      Stofnun samtaka/félags
7.      Kosning stjórnar
8.      Markmið félagsins/nafn
9.      Önnur mál
10.   Fundarslit.
 
Sigfús Vilhjálmsson setti fundinn og bauð menn velkomna.
Jón Guðmundsson var settur fundarstjóri.
Ritari var skipaður Jóhann Jónsson.

4. Frummælendur:

- Jónas Hallgrímsson fjallaði um sögu jarðgangamála.
Þann 15. júní 1975 kom Smyril fyrst til Seyðisfjarðar og var J.H. þá um haustið boðinn til Færeyja og kynntist m.a. jarðgangagerð þar.  Þegar málið var reifað í vegagerð var áhugi þar, en pólitískur stuðningur ekki fyrir hendi.  Stuðningur við göng var fyrst og fremst til staðar á Norðfirði, m.a. komu  Kristinn V. Jóhannsson og Logi Kristjánsson að málinu.
 Matthías Á. Matthíasson  skipaði nefnd og var í framhaldi af því sett fram áætlun, og úr varð að göng á Austurlandi yrðu númer 2,  (Fjarðarheiði og Oddskarð) á eftir Vestfjörðum.  Á áætlun var að hafist yrði handa á Austurlandi 1998-99.  Nefnd var skipuð sem í áttu sæti, Þorvaldur Jóhannsson, Ásgeir Magnússon og Sveinn Guðmundsson.  Sett var fram forgangsröðun í þremur áföngum og göng milli Seyðisfjarðar, Norðfjarðar og Eskifjarðar no. 1.
 Á Siglufirði var komin upp umræða um göng sem áætlun er um í dag ásamt með göngum Reyðarfjörður-Fáskrúðsfjörður.  Fundurinn í dag sé upphafið að því að marka stefnu um það sem framundan er, og nota þennan fund ekki til að rífa niður það sem ákveðið hefur verið.

- Kristinn Jóhannsson.
 Mjóifjörður og Seyðisfjörður voru  nafli alheimsins á fyrri hluta síðustu aldar, en erfiðar samgöngur hamlandi.  Slátrun á laxi,   hefst í haust á laxi úr sjókvíum á Mjóafirði.  Jafnframt er von  á 11-1200.000 seiðum í kvíarnar.  Næsta haust er áformað að slátra um 4.000 tonnum.  Samgöngur fyrir svona atvinnustarfsemi afar mikilvægar og verða ekki bættar nema með jarðgöngum.  Þörfin fyrir svona starfsemi meiri nú en nokkru sinni áður.  Jafnframt ef jákvæð útkoma verður 18. júlí 2002 um álver verður þörfin enn meiri.
 Fyrir atvinnuvegina nauðsynlegra en nokkru sinni að ýta þessari framkvæmd fram.  Fyrir norðan voru jarðgöng töluð í gegn.  Fjölmiðlar í Reykjavík eru afar andsnúnir stórum framkvæmdum úti á landi.  Umræðan í dag í því móti að efla byggðakjarna, s.s. Ísafjörður – Akureyri og Mið-Austurland.  Fjarðabyggð frá Seyðisfirði og a.m.k. til Stöðvarfjarðar með sterkri tengingu við Egilsstaði og Hérað.  Með svona jarðgöngum verði Austurland mikilvægast utan Reykjavíkur vegna legu og landkosta, ásamt álveri og fiskeldi.

- Guðrún Katrín Árnadóttir.
 Án jarðganga erum við ekki að tala um byggðakjarna.  Þó einstaka aðilar séu ekki bundnir af föstum vinnutíma og sæki vinnu á milli svæða er ekki hægt að alhæfa út frá því að svæðið sé eitt atvinnusvæði.  GKÁ vitnaði í skýrslu Einars K. Guðfinnssonar varðandi jákvæð áhrif jarðganga á Vestfjörðum.  Ágreiningur sveitarstjórnarmanna hafi verið málinu fjötur um fót.   Þennan ágreining verði að setja til hliðar.

- Einar Þorvarðarson,  frá Vegagerð Ríkisins.
Jarðgöng á Austurlandi.
Nefndarálit 1993.
E.Þ. fór yfir kostnaðartölur við vegagerð og jarðgöng.  Ýmsar athuganir voru gerðar við þessa nefndarvinnu, m.a. jarðfræðiskýrslur s.s. 1984, 1992 og 1993, snjómokstur 1992 o.fl.
 Veganestið sem Vegagerðin átti að leggja upp með var að rjúfa vetrareinangrun staða.  Málið var kynnt á glærum.  Ýmsir jarðganga möguleikar voru skoðaðir, milli staða skv. glæru.
 Einar sýndi glæru með aldri bergsins, austast 12 milljón ára og vestar yngist það, er 10 milljón ára o.s.frv.  Einnig kort sem sýnir lengdir jarðganga.  Göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar 5,3 km löng (einn kostur) en mismunandi löng (fleiri kostir) á milli hinna staðanna.  Kostnaðaráætlun var gerð á sínum tíma um jarðgöng á Mið-Austurlandi, sem þá kostuðu frá 5,7 - 6,7 milljarða.
Austfjarðaskýrsla 1993.
 1. áfangi     Seyðisfjörður – Norðfjörður
 2. áfangi     Vopnafjörður – Hérað og  Fáskrúðsfjörður – Reyðarfjörður
 3. áfangi     Firðirnir suður af Fáskrúðsfirði.
E.Þ. sýndi ýmsar glærur, m.a. göng Jökulsárhlíð – Böðvarsdalur í Vopnafirði.
 
-Guðmundur Valur.
 Ræddi um jarðgöng út frá sjónarmiði fiskeldisins Sæsilfurs.  Sæsilfur er að byggja upp nýjan atvinnuveg þ.e. menn eru að gera það sem ekki hefur verið gert áður.  Verið er að byggja upp stöð nú upp á 4.000 tonn og áformað að auka við.  Áformuð er framleiðsla á ca. 6.000 tonnum á ári.  Líklegt að byggð verði fóðurverksmiðja, e.t.v. á Norðfirði.  Áætluð notkun á fóðri í Mjóafirði 2003,  er 5000 - 6000 tonn.  Verið er að keppa við erlend fyrirtæki sem hafa náð mjög góðum tökum á sínum kostnaði.  Samgöngur gífurlega mikilvægt atriði til að ná niður kostnaði og auka þar með samkeppnishæfni.

5. Umræður


Guðmundur Bjarnason þakkaði þeim sem hafa haft frumkvæði að því að koma málinu af stað.  Eining verði ekki um þessi göng þar sem aðrar hugmyndir eru einnig inni í myndinni.  Málið verði Austfirðingum til heilla.
Guðrún Katrín fjallaði um að mikilvægt sé að hópur standi á bak við þá sem eru að vinna að framgangi málsins.

Jónas Hallgrímsson fjallaði um hóp sem fór í kynnisferð til Færeyja, að austan og vestan og augu manna hafi þá fyrst opnast fyrir kostum jarðganga.  Í framhaldi af því var haldin ráðstefna á Seyðisfirði 1988, “Við byrjum að bora” var nafnið á ráðstefnunni.  Jónas saknaði þátttöku aðila frá Suðurfjörðunum, sunnan Reyðarfjarðar á fundinum  og  eins frá Vopnafirði því málinu sé ekki stefnt gegn þeim.
 
Jóhanna Gísladóttir þakkaði Guðrúnu Katrínu fyrir frumkvæðið að fundinum og fjallaði um málið út frá sjónarmiði ferðaþjónustunnar, m.a. hvað snertir hringtengingu og verði ferðaþjónustunni eingöngu til framdráttar.

Mikael Jónsson talaði um að leggja ætti hrepparíginn af.  Samstöðu innan fjórðungsins þurfi til.

Hrafnkell Jónsson.  Máli skiptir að menn standi saman.  Geti þurft að sameina sveitarfélög.  Ánægður með að menn ætli ekki að fara í samkeppni um göng sem þegar er búið að ákveða.  Saknaði þess að ekki væru fleiri aðilar af Héraði.  Hrafnkell telur að þeir sem ráði peningamálum á Suð-Vesturhorninu taki ekki á okkur með silkihönskum:  Nauðsynlegt að sækja stuðning í sveitarstjórnir annars verði baráttan erfið.  Gæti verið góð hugmynd að taka fyrstu skóflustunguna strax.

Guðni Nikulásson.  Jaðarbyggðir s.s. Norðfjörður og Seyðisfjörður visni upp og deyji ef ekki komi til jarðgöng.  Mikilvægt er að tengja saman í heild rannsóknir á jarðgöngum, Eskifjörður-Seyðisfjörður.  Guðni varaði við að þessi fundur mætti ekki vera bara bóla, fylgja þyrfti fundinum eftir.

Guðrún Katrín talaði um sparnað sveitarfélaga, tók undir með Guðna að fylgja þyrfti boðskap fundarins eftir.

Ýmsar umræður voru um arðsemi, Jónas Hallgrímsson, Jóhanna Gísladóttir o.fl. spurðu Einar Þorvarðarson, sem svaraði.  M.a. kom fram hjá E.Þ. að hann teldi að þau göng sem voru á áætlun kostuðu í dag u.þ.b. 10 milljarða.

 

6. Stofnun samtaka/félags 


Jón Guðmundsson bar fram tillöguna.  Fram kom tillaga að nafni hjá Kristjáni Jóhannssyni “Byrjum að bora”. 
Tillaga um stofnun félags var samþykkt samhljóða.

7. Kosning stjórnar


 Fram kom tillaga um
-         Jónas Hallgrímsson
-         Kristinn Jóhannsson
-         Guðrún Katrín Árnadóttir
-         Sveinn Sigurbjarnarson
-         Jörundur Ragnarsson
-         Hrafnkell A. Jónsson
-         Sigfús Vilhjálmsson 
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 

-

8. Markmið félagsins


Stjórn félagsins var falið að vinna markmið félagsins.  Stjórn félagsins falið að gera tillögu að nafni félagsins. 

9. Önnur mál

Sigfús Vilhjálmsson þakkaði fyrir góðan fund. 

10.  Fleira ekki tekið fyrir - 


 Jón Guðmundsson þakkaði fyrir góðan fund og sleit síðan fundi.  

    Jóhann Jónsson (sign)
           fundarritari    
Jón Guðmundsson (sign)
           Fundarstjóri.

 

06 Stjórnarfundur 5 mars, 2003

Stjórnarfundur 05.03. 2003 búið
 Stjórn SAMGÖNG kom saman til fundar á Hótel Héraði á Egilsstöðum kl. 17:00.
Mættir:
            Guðrún Katrín Árnadóttir
              Sigfús Vilhjálmsson
              Jónas Hallgrímsson
              Sveinn Sigurbjarnarson
              Jörundur Ragnarsson
              Hrafnkell A. Jónsson  
Formaður Guðrún Katrín Árnadóttir stjórnaði fundi, Hrafnkell A. Jónsson ritaði fundargerð.
 Þetta gerðist.
 
1.       Samþykktir       
                    Samþykktir Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið-Austurlandi voru undirritaðar.
 
2.    Auglýsing            
                    Kynnt var auglýsing frá SAMGÖNG sem birtist í Dagskránni 10. tbl. 2003.
 
3.     Næstu skref   
                     Rætt var um næstu skref í baráttu fyrir framgangi hugmynda SAMGÖNG.   Formaður gerði grein fyrir hugmyndum sínum um að efna til viðtækrar undirskriftasöfnunar á Mið-Austurlandi þar sem reynt væri að afla breiðs stuðnings við málefnið og afhenda undirskriftirnar þingmönnum kjördæmisins á ráðstefnu um samgöngumál sem áformað er að halda á Austurlandi í mars.
Hugmynd formanns var rædd og komu þar fram efasemdir um að þetta væri besta leiðin eins og mál standa í dag.    Bent var á að til að ná góðri niðurstöðu þyrfti mikla skipulagningu og mannafla.   Undirskriftasöfnun gæti vissulega þjónað tilgangi t.d. á Seyðisfirði þar sem áhugi fyrir jarðgangagerð er almennur, en aftur á Héraði þyrfti væntanlega meiri tíma og mannafla.
Eftir umræður var samþykkt að framkvæma undirskriftarsöfnun með þeim hætti að ganga í hús þar sem mannafli fæst.   Annars staðar yrði auglýst að undirskriftalistar lægju frami og fólk hvatt með auglýsingum og með því að vera á ferð í verslunum og fjölsóttum þjónustufyrir-tækjum með lista.
Fólki yrði gefinn kostur á að velja hvort það skráði sig sem félaga í samtökunum og lýsti með þeim hætti stuðningi við hugmyndir SAMGÖNG, eða það skrifaði nöfn sín á lista til stuðnings málefninu.   Samþykkt var að undirskriftasöfnunin stæði til 6. apríl n.k.
 
4.        Kynning í útvarpi  
                    Samþykkt var að leita eftir því að koma að kynningu á málefnum SAMGÖNG í Svæðisútvarpinu , Sigfúsi Vilhjálmssyni var falið að koma þar fram sem talsmaður stjórnarinnar.   Guðrúnu Katrínu var falið að koma fréttatilkynningu í Austurgluggann.
 
5.         Hagkvæmnismat
                   Sveitarstjórn Seyðisfjarðar og Fjarðabyggðar hefur verið sent bréf þar sem því er beint til sveitarstjórnanna að þær fari þess á leit við Byggðastofnun að gerð verði úttekt á hagkvæmni og byggðaáhrifum jarðgangna á Mið-Austurlandi, þar sem í forsendum úttektarinnar væri tekið tillit til raka SAMGÖNG eins og þau voru sett fram í bréfi SAMGÖNG til Byggðastofnunar dags. 27.1.2003.  
Fleira var ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:00.
Hrafnkell A. Jónsson, ritari
 

 

03 Stjórnarfundur 8 ágúst, 2002

Stjórnarfundur
Samtakaáhugafólks um jarðgöng á Mið – Austurlandi  8.08 2002


Dagskrá :


1. Nafn á samtökinn.
2. Markmið samtakanna.
3. SSA. þing
4. Bréf til þingmanna kjördæmisinns.
5. Bréf til Byggðastofnunnar  ( Uppkast )
6. Fundargerð um jarðgangaframkvæmdir á Austurlands.
7. Stefnumörkun íslenskra sveitafélaga í byggðarmálum.
8. Félaga skráningar.
9. Almennur fundur fyrir fólk á Mið – Austurlandi

 

Samgöng

Samtök áhugafólks um jarðgöng á Mið – Austurlandi
Stofnuð 29. júní  2002 í Mjóafirði.

Markmið samtakanna er að gera Mið – Austurland að einu atvinnu og þjónustusvæði, rjúfa vetrareinangrun og stytta vegalengdir með jarðgöngum milli byggðarlaga á Mið  – Austurlandi.


Forsenda þess að byggja upp raunverulegt  atvinnu og þjónustusvæði  á Mið –Austurland  með 6000 – 7000 íbúum, er að bæta samgöngur og stytta vegalengdir með jarðgöngum milli:

Eskifjarðar – Neskaupstaðar.
Neskaupstaðar – Mjóafjarðar – Seyðisfjarðar – Héraðs.


Jarðgöng stytta vegalengdir milli ofangreindra byggðarlaga verulega.

Dæmi um styttingar:

 Byggðarlög    með göngum   er í dag
 Neskaupstaður –   Seyðisfjörður  26  km  100 km
 Eskifjörður       –   Seyðisfjörður      25  km    72 km
 Reyðarfjörður   –   Seyðisfjörður    38  km  61 km
 Mjóifjörður       –   Seyðisfjörður   10 km   62 km
 Neskaupstaður –   Eskifjörður  21 km  22 km
 Neskaupstaður –   Egilsstaðir  43 km  71 km
 Mjóifjörður       –   Egilsstaðir     34 km    42 km 
 Egilsstaðir       –   Seyðisfjörður    34 km   27 km   

 

Vegalengd milli Seyðisfjarðar og Egilsstaðar lengist lítillega með göngum, en á móti kemur að ekið er um veg í u.þ.b 200 – 300m hæð, í stað rúmlega 630 m hæð eins og nú er gert þegar ekið er yfir Fjarðarheiði.
Hið sama er að segja um leiðina milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar. Í dag er þessi leið í 630m hæð, en færi mest í 230m hæð.                                   

05 Stjórnarfundur 13 janúar, 2003

SAMGÖNG
Fundargerð stjórnar. 13.01.2003.
Stjórn SAMGÖNG mætti til fundar á Hóteli Héraði kl. 16:00 
 mættir: Guðrún Katrín Árnadóttir,
                    Sveinn Sigurbjarnarson,
                    Sigfús Vilhjálmsson,
                    Jörundur Ragnarsson  
                    Hrafnkell  A. Jónsson.

Formaður Guðrún Katrín setti fund og fól Hrafnkatli að rita fundargerð.
.
  
1. Undirskrift
Gengið var frá undirskriftum vegna umsóknar um kennitölu fyrir   félagið.
2. Styrkir
Samtökin hafa fengið 50.000,- kr. styrk frá Fjarðabyggð, önnur sveitarfélög sem sótt hefur verið um styrk til hafa annað hvort synjað beiðninni eða ekki afgreitt hana.
3. Næstu skref
Rætt var um næstu skref til að kynna félagið, og á hvern hátt best yrði unnið að kynningu fyrir það litla fjármagn sem “samtökin” hafa til ráðstöfunar.   Samþykkt var að leggja áherslu á heimsíðu félagsins sem er vistuð undir www.sfk.is    en síðan  hefur vefslóðina www.sfk.is/jardgong.htm    Reynt verður að auglýsa heimasíðuna með skipulögðum hætti í Dagskránni.   Leitað verður eftir því við aðstandendur vefmiðlanna www.local.is , www.austurland.is, www.egilsstadir.is, og www.fjardabyggd.is að þar komi linkar fyrir heimasíðuna.
3. Opinberir  aðilar
Rætt var um samskipti við opinbera aðila.   Samþykkt var að senda stjórn Byggðastofnunar bréf þar sem farið verður fram á nýtt arðsemismat vegna jarðgangagerðar á Austurlandi í samræmi við hugmyndir “samtakanna”.   Í þessu mati verði tekið tillit til breyttra aðstæðna á Austurlandi með tilkomu byggingar álvers við Reyðarfjörð, fiskeldi víða í fjörðum austanlands, nýrrar Norrænu og beins flugs á Egilsstaði frá Þýskalandi þessar aðstæður breyta öllu samgöngumynstri og gætu breytt arðsemisútreikningum á sama máta.    Þá telur stjórnin mjög brýnt að sérfræðingar Byggðastofnunar verði fengnir til að meta þann kostnað sem af því hlíst að fara ekki í gerð jarðgangna, þar verði metinn inn aukinn byggðaflótti, kostnaður við að úrelda mannvirki í byggðum austanlands og kostnaður við uppbyggingu hliðstæðra mannvirkja á suð-vesturhorninu.
 5. Önnur mál
Stjórnin ræddi loks nauðsyn þess að efla tengsl við sveitarstjórnir á Austurlandi og mun fara fram á fundi með sveitarstjórnarmönnum til að kynna markmið samtakanna og leita eftir stuðningi sveitarstjórna við þau.   Á sama hátt verður leitað til almannasamtaka á borð við stéttarfélög, þróunarfélög og önnur samtök sem láta sig velferð Austurlands varða..
 
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 17:45
 
Hrafnkell A. Jónsson, fundarritari
 
 

 

02 Fundargerð fyrsta stj.fundar 11 júlí, 2002

Samtök áhugafólks um jarðgöng á mið-Austurlandi.


Fundargerð:


Þann 11. júlí 2002 kom stjórn Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið-Austurlandi, saman til fundar á Hótel Héraði á Egilsstöðum.
Fundurinn hófst kl. 17:00.
Mættir. Guðrún Katrín Árnadóttir Seyðisfirði, Kristinn V. Jóhannsson Neskaupstað, Sigfús Vilhjálmsson Mjóafirði, Jörundur Ragnarsson Austur-Héraði, Hrafnkell A. Jónsson Fellabæ. Tveir stjórnarmanna boðuðu forföll þeir Jónas Hallgrímsson Seyðisfirði og Sveinn Sigurbjarnarson Eskifirði.

Guðrún Katrín stýrði fundi. Gengið var til dagskrár:

1. Stjórn skipti með sér verkum.
Formaður: Guðrún Katrín Árnadóttir,
varaformaður: Kristinn V. Jóhannsson,
ritari: Hrafnkell A. Jónsson Fellabæ.

2. Rætt var um næstu verkefni stjórnar:   
a) Samtökunum sett skýr stefnumið. Guðrún Katrín dreyfði uppkasti að stefnumiðum. Ákveðið að stjórnarmenn létu breytingar ef þeir teldu þörf á, ganga á milli í tölvupósti.
b) Umræða um hvernig markmiðum samtakanna yrði komið á framfæri.   Stjórnarmenn munu eftir því sem þeir hafa tök á rita blaðagreinar.   Málinu komið á framfæri við þingmenn kjördæmisins og því unnið fylgi á vettvangi stjórnmálaflokkanna.
c) Rætt verði við formann og framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi og óskað eftir að fá að koma málinu að á næsta aðalfundi SSA sem haldinn verður í næsta mánuði á Seyðisfirði.
d) Rætt var um áhyggjur sem komið hafa fram um að markmið þessara samtaka ynnu gegn jarðgagagerð milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.   Eftirfarandi tillaga var samþykkt einróma:
Stjórnin lýsir yfir fullum stuðningi við gerð jarðgangna milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, sem næstu framkvæmd í jarðgangagerð.   Það er von stjórnarinnar að hafist verði handa við þá framkvæmd á þessu ári eins og áformað hefur verið.      
e) Rætt var um nauðsyn þess að finna samtökunum nafn sem væri      þjált og munntamt.
f) Rætt um ýmsar leiðir til að vinna jarðgangnagerð á Mið-Austurlandi stuðning meðal almenning.   Þar var bent á þörf þess að sýna á skíran hátt hversu miklar styttingar yrðu á leiðum milli þéttbýlisstaða á Mið-Austurlandi ef hugmyndum samtakanna yrði hrundið í framkvæmd.
Þá kom fram sú hugmynd að Byggðastofnun verði fengin til að meta þjóðhagslega hagkvæmni jarðgangagerðar með tilliti til þess að verði ekki af framkvæmdum er veruleg hætta á að byggðir fari í eyði og þar með verði verulegar opinberar eignir verðlausar, eins og eignir einstaklinga. Byggja þarf upp samsvarandi þar sem flóttafólkið sest að.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt.

Stjórnin telur brýnt að metinn verði sá þjóhagslegi ávinningur sem fæst með styttingu leiða og stórauknu öryggi í samgöngum með þeim tillögum sem Samtökin leggja til í jarðgangagerð á Mið-Austurlandi.
Stjórnin telur eðlilegt að kostnaður við jarðgangagerð verði metinn á móti kostnaði samfélagsins vegna byggðasamdráttar.
Stjórnin beinir því til stjórnar Byggðastofnunar að gerð verði úttekt í samræmi við þessar hugmyndir.

Fleira var ekki bókað. 

Hrafnkell A. Jónsson ritari

 

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar