Stjórn SAMGÖNG hittist á Fosshóteli, Reyðarfirði þann 29.07.2004 kl. 17:00.
Mættir voru . Guðrún Katrín, Sveinn, Sigfús og Kristinn.
Dagskrá :
1. Staða verkefna sem eru í gangi
2. Bréf til sveitastjórna á Mið – Austurlandi
3. Kynning á heilborun
4. Önnur mál
1. Staða verkefna sem eru í gangi
Bréf sem senda átti fyrirtækjum til kynningar er ekki farið, en verður sent næstu daga. Sama er að segja um bréf til Samgönguráðuneytisins vegna nokkurra óljósra atriða í svari ráðuneytisins við bréfi SSA frá 22. mars í vetur.
Þá lá ekki fyrir hvort Jörundur hafi rætt við Valgerði iðnaðar og byggðamálaráðherra um að ýta á eftir því að Byggðastofnun hefðist handa við úttekt á þeim jarðgangakostum, sem SAMGÖNG hafa beint sjónum sínum að.
2. Bréf til sveitastjórna
Stjórnin samþykkti að skrifa öllum sveitafélögum á Mið – Austurlandi í tilefni þess að í haust verður vegaáætlun endurskoðuð og hvetja þau til að þrýsta á stjórnvöld að setja aukinn kraft í jarðgangagerð og benda á að samgönguskortur í dag stendur uppbyggingu fyrir þrifum. Svæðið þarf að opna svo það geti tekið við verkefnum.
3. Kynning á heilborun
Á fundinn mættu Einar Már Sigurðsson alþingismaður og Sigurður Gunnarsson starfsmaður við borun á Fljótsdalsheiði.
Sigurður útskýrði fyrir stjórnarmönnum getu boranna, sem Impreglio notar, en þeir eru með borkrónu sem er 7,52 m í þvermál.
Sigurður benti á að mikilvægt væri að Vegagerðin setti sér staðal um breidd vega í veggöngum. Ýmsan annan fróðleik kynnti Sigurður stjórninni um afköst þessara bora, verð við gangagerð ofl. Er greinilegt af máli hans , að ef Íslendingar bæru gæfu til að taka upp þessa heilborunartækni í stað sprengiaðferðarinnar mundi kostnaður snarlækka og verkhraði stóraukast.Taldi Sigurður afköst eiga að vera 40 – 50 metra á sólarhring og að verð pr/km. Væri a.m.k. 30- 40% lægra en með hefðbundinni sprengiaðferð.
Rætt var um möguleika á því að stjórnin kæmist upp að Kárahnjúkum og fengi að sjá borana vinna.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:30
Nýkjörin stjórn SAMGÖNG kom saman til fundar á Hótel Héraði laugardaginn 4. okt. 2003 og skipti með sér verkum.
Tillaga kom fram um formann Guðrúnu Katrínu Árnadóttur, Jörund Ragnarsson sem gjaldkera og Hrafnkel A. Jónsson sem ritara. Tillagan var samþykkt samhljóða.
SAMGÖNG
Fundargerð stjórnar. 13.01.2003.
Stjórn SAMGÖNG mætti til fundar á Hóteli Héraði kl. 16:00
mættir: Guðrún Katrín Árnadóttir,
Sveinn Sigurbjarnarson,
Sigfús Vilhjálmsson,
Jörundur Ragnarsson
Hrafnkell A. Jónsson.
Formaður Guðrún Katrín setti fund og fól Hrafnkatli að rita fundargerð.
.
1. Undirskrift
Gengið var frá undirskriftum vegna umsóknar um kennitölu fyrir félagið.
2. Styrkir
Samtökin hafa fengið 50.000,- kr. styrk frá Fjarðabyggð, önnur sveitarfélög sem sótt hefur verið um styrk til hafa annað hvort synjað beiðninni eða ekki afgreitt hana.
3. Næstu skref
Rætt var um næstu skref til að kynna félagið, og á hvern hátt best yrði unnið að kynningu fyrir það litla fjármagn sem “samtökin” hafa til ráðstöfunar. Samþykkt var að leggja áherslu á heimsíðu félagsins sem er vistuð undir www.sfk.is en síðan hefur vefslóðina www.sfk.is/jardgong.htm Reynt verður að auglýsa heimasíðuna með skipulögðum hætti í Dagskránni. Leitað verður eftir því við aðstandendur vefmiðlanna www.local.is , www.austurland.is, www.egilsstadir.is, og www.fjardabyggd.is að þar komi linkar fyrir heimasíðuna.
3. Opinberir aðilar
Rætt var um samskipti við opinbera aðila. Samþykkt var að senda stjórn Byggðastofnunar bréf þar sem farið verður fram á nýtt arðsemismat vegna jarðgangagerðar á Austurlandi í samræmi við hugmyndir “samtakanna”. Í þessu mati verði tekið tillit til breyttra aðstæðna á Austurlandi með tilkomu byggingar álvers við Reyðarfjörð, fiskeldi víða í fjörðum austanlands, nýrrar Norrænu og beins flugs á Egilsstaði frá Þýskalandi þessar aðstæður breyta öllu samgöngumynstri og gætu breytt arðsemisútreikningum á sama máta. Þá telur stjórnin mjög brýnt að sérfræðingar Byggðastofnunar verði fengnir til að meta þann kostnað sem af því hlíst að fara ekki í gerð jarðgangna, þar verði metinn inn aukinn byggðaflótti, kostnaður við að úrelda mannvirki í byggðum austanlands og kostnaður við uppbyggingu hliðstæðra mannvirkja á suð-vesturhorninu.
5. Önnur mál
Stjórnin ræddi loks nauðsyn þess að efla tengsl við sveitarstjórnir á Austurlandi og mun fara fram á fundi með sveitarstjórnarmönnum til að kynna markmið samtakanna og leita eftir stuðningi sveitarstjórna við þau. Á sama hátt verður leitað til almannasamtaka á borð við stéttarfélög, þróunarfélög og önnur samtök sem láta sig velferð Austurlands varða..
Stjórnarfundur 22.06. 2004
Haldinn á Hótel Héraði kl. 17:00.
Mættir voru Guðrún Katrín, Sveinn Sigurbjarnarson, Jörundur Ragnarsson, Jónas Hallgrímsson og Hrafnkell A Jónsson.
1. Bréf frá Samgönguráðuneytinu
Tekið var fyrir svarbréf Samgönguráðuneytisins dags. 22.mars 2004 við bréfi framkvæmdarstjóra SSA sem hann ritaði fyrir hönd samgöngunefndar SSA dags. 2. Janúar 2004 . Í bréfinu óskar SSA eftir því við samgönguráðuneytið að unnin verði heilstæð jarðgangaúttekt fyrir Austurland.
Stjórn SAMGÖNG sættir sig ekki við svar Samgönguráðuneytisins og var Jónasi Hallgrímssyni falið að svara bréfi Samgönguráðuneytisins .
2. Bréf til fyrirtækja
Ákveðið var að senda Fyrirtækjum á Austurlandi bréf þar sem óskað væri eftir stuðningi þeirra við markmið samtakanna.
3. Kanna kaup á borunum
Rætt var um mikilvægi þess að nýta bora þá sem nú eru í notkun við gerð jarðganga í Kárahnjúkum til áframhaldandi jarðgangagerða í fjórðungnum. Stjórn samtakanna telur mikilvægt að kannaður verði áhugi ítalanna á sölu boranna.
4. Kynning á markmiðum samtakanna
Ræddar voru ýmsar leiðir til að kynna markmið samtakanna enn frekar s.s með gerð límmiða í bíla o.fl.
Fleira var ekki tekið fyrir fundi slitið kl. 18;00
Stjórnarfundur 07. 08. 2003. búið
Fundurinn var haldinn á Hótel Héraði Egilsstöðum og hófst kl. 17:00.
Mættir:
Guðrún Katrín
Jörundur
Kristinn
Sigfús
Hrafnkell mætti kl. 17:30.
Formaður Guðrún Katrín, setti fund og stjórnaði honum. Hrafnkell ritaði fundargerð.
Gengið var til dagskrár:
1. Aðalfundur 2003.
Samþykkt að halda aðalfund um mánaðarmót september, október. Fundarstaður Hótel Hérað Egilsstöðum.
Rætt um að fá Helga Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóra til að flytja erindi um jarðgöng á Austurlandi. Sigfús tók að sér að ræða við Helga.
Guðrún Katrín upplýsti að þar sem hún flyst tímabundið af svæðinu, þá muni hún ekki taka að sér formennsku á næsta ári. Rætt um að gera tillögu um Sigfús Vilhjálmsson sem formann næsta ár.
2. Önnur mál.
Stjórnin samþykkti að leita eftir því að fulltrúi SAMGÖNG einn eða fleiri fái seturétt á Samgönguráðstefnu SSA sem fyrirhugað er að halda í október n.k. Guðrúnu var falið að koma erindi til SSA.
1. Tekið fyrir bréf frá Guðrúnu Sigríði Knútsdóttur nemanda á þriðja ári í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Guðrún Sigríður hefur áhuga á því að gera einhverskonar úttekt á jarðgöngunum í BA ritgerð sinni, og óskar eftir samstarfi við samtökin.
Stjórn samtakanna fagnar þessari beiðni Guðrúnar og er reiðubúin að veita henni alla þá aðstoð sem hún getur ef af þessu verður.
2. Á fyrsta stjórnarfundi samtakanna í júlí s.l. var ákveðið að taka engin gjöld af félagsmönnum. Eigi samtökin hins vegar að geta kynnt hugmyndir sínar fyrir almenningi er ljóst að einhverjir fjármunir þurfa að koma til. Því var ákveðið að sækja um útgáfu og kynningarstyrk til bæjarfélaga og fyrirtækja sem hagsmuna eiga að gæta varðandi jarðgöng á Mið – Austurlandi.
Ýmsar leiðir til kynningar voru ræddar. Auk blaðagreina o.þ.h. ákvað stjórnin að kynna hugmyndir samtakanna í Dagskránni sem prentuð er í 5000 eintökum og fer um allt Austurland og jafnvel víðar.
Til að halda utan um fjármál samtakanna var Jörundur Ragnarsson skipaður gjaldkeri.
3. Ræddar voru ýmsar jarðgangahugmyndir. Stjórnarmenn voru sammála um að kanna þyrfti hvort hagkvæmara er að bora göng frá Seyðisfirði til Eskifjarðar með afleggjurum til Mjóafjarðar, Neskaupsstaðar og upp í Slenjudal.
Með þessari hugmynd þarf einungis að gera 5 gangamuna í stað 8 auk þess sem talið ódýrara að bora göng heldur en sprengja.
4. Í samtökunum eru nú u.þ.b. 300 – 400 manns. Samtökin eru einungis fjögra mánaða gömul, þetta segir okkur að; að meðaltali hafa u.þ.b. 100 manns skráð sig í samtökin á mánuði. Stjórnin vill að í framtíðinni geti fólk skráð sig í samtökin á netinu.
Fleira var ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 18:00
Fundarritari
Stjórnarfundur 21.11.2003
Haldinn á Fosshótel Reyðarfirði Kl. 15:30
Mætt voru : Guðrún Katrín Árnadóttir, Sveinn Sigurbjarnarson , Jörundur Ragnarsson og Sigfús Vilhjálmsson.
1. Jólakveðja
Rætt var um að senda þingmönnum jóla eða nýárskveðju frá samtökunum.
2. Faglegur ráðgjafi
Guðrún Katrín sagði fundarmönnum frá því að Svein Jónsson væri jákvæður fyrir því að vera faglegur ráðgjafi samtakanna.
3. Ræða við bæjarstjórnarmenn
Ákveðið var að ræða við bæjarstjórnarmenn á Héraði um mikilvægi
þessa ganga.
4. Efla umræðu
Stjórn samtakanna var sammála um að efla þyrfti umræðu um jarðgöngin meðal almennings, ákveðið var að gera átak í því m.a. með viðtölum í útvarpi og blaðaskrifum.
Stjórnarfundur 05.03. 2003 búið
Stjórn SAMGÖNG kom saman til fundar á Hótel Héraði á Egilsstöðum kl. 17:00.
Mættir:
Guðrún Katrín Árnadóttir
Sigfús Vilhjálmsson
Jónas Hallgrímsson
Sveinn Sigurbjarnarson
Jörundur Ragnarsson
Hrafnkell A. Jónsson
Formaður Guðrún Katrín Árnadóttir stjórnaði fundi, Hrafnkell A. Jónsson ritaði fundargerð.
Þetta gerðist.
1. Samþykktir
Samþykktir Samtaka áhugafólks um jarðgöng á Mið-Austurlandi voru undirritaðar.
2. Auglýsing
Kynnt var auglýsing frá SAMGÖNG sem birtist í Dagskránni 10. tbl. 2003.
3. Næstu skref
Rætt var um næstu skref í baráttu fyrir framgangi hugmynda SAMGÖNG. Formaður gerði grein fyrir hugmyndum sínum um að efna til viðtækrar undirskriftasöfnunar á Mið-Austurlandi þar sem reynt væri að afla breiðs stuðnings við málefnið og afhenda undirskriftirnar þingmönnum kjördæmisins á ráðstefnu um samgöngumál sem áformað er að halda á Austurlandi í mars.
Hugmynd formanns var rædd og komu þar fram efasemdir um að þetta væri besta leiðin eins og mál standa í dag. Bent var á að til að ná góðri niðurstöðu þyrfti mikla skipulagningu og mannafla. Undirskriftasöfnun gæti vissulega þjónað tilgangi t.d. á Seyðisfirði þar sem áhugi fyrir jarðgangagerð er almennur, en aftur á Héraði þyrfti væntanlega meiri tíma og mannafla.
Eftir umræður var samþykkt að framkvæma undirskriftarsöfnun með þeim hætti að ganga í hús þar sem mannafli fæst. Annars staðar yrði auglýst að undirskriftalistar lægju frami og fólk hvatt með auglýsingum og með því að vera á ferð í verslunum og fjölsóttum þjónustufyrir-tækjum með lista.
Fólki yrði gefinn kostur á að velja hvort það skráði sig sem félaga í samtökunum og lýsti með þeim hætti stuðningi við hugmyndir SAMGÖNG, eða það skrifaði nöfn sín á lista til stuðnings málefninu. Samþykkt var að undirskriftasöfnunin stæði til 6. apríl n.k.
4. Kynning í útvarpi
Samþykkt var að leita eftir því að koma að kynningu á málefnum SAMGÖNG í Svæðisútvarpinu , Sigfúsi Vilhjálmssyni var falið að koma þar fram sem talsmaður stjórnarinnar. Guðrúnu Katrínu var falið að koma fréttatilkynningu í Austurgluggann.
5. Hagkvæmnismat
Sveitarstjórn Seyðisfjarðar og Fjarðabyggðar hefur verið sent bréf þar sem því er beint til sveitarstjórnanna að þær fari þess á leit við Byggðastofnun að gerð verði úttekt á hagkvæmni og byggðaáhrifum jarðgangna á Mið-Austurlandi, þar sem í forsendum úttektarinnar væri tekið tillit til raka SAMGÖNG eins og þau voru sett fram í bréfi SAMGÖNG til Byggðastofnunar dags. 27.1.2003.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:00.
Hrafnkell A. Jónsson, ritari
Stjórnarfundur
Samtakaáhugafólks um jarðgöng á Mið – Austurlandi 8.08 2002
Dagskrá :
1. Nafn á samtökinn.
2. Markmið samtakanna.
3. SSA. þing
4. Bréf til þingmanna kjördæmisinns.
5. Bréf til Byggðastofnunnar ( Uppkast )
6. Fundargerð um jarðgangaframkvæmdir á Austurlands.
7. Stefnumörkun íslenskra sveitafélaga í byggðarmálum.
8. Félaga skráningar.
9. Almennur fundur fyrir fólk á Mið – Austurlandi