Fjárframlög til heilbrigðisstofnana
Það hefur komið á daginn það sem óttast var. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar kemur fram að aukin framlög til heilbrigðiskerfisins ná ekki til landsins alls. Það eru að minnsta kosti tvær stofnanir á Norðausturhluta landsins sem virðast ekki vera á dagskrá þessarar ríkisstjórnar.Sjálfvíg verður að rannsaka
Á Íslandi eru sjálfsvíg ekki rannsökuð nema að litlu leyti. Sú litla rannsókn sem fer fram í kjölfar sjálfsvígs snýst um að komast að því hvort viðkomandi hafi ekki örugglega tekið líf sitt sjálfur. Alltaf fer fram krufning ef um sjálfsvíg er að ræða en lengra nær rannsóknin ekki og málinu þar með lokað.Lúter var 34 ára, ég 36
Ég er asni, það er alveg ljóst. Ég hefði ekki þurft að spyrja, kannski hugsa. Auðvitað er það líka ljóst að okkar hluta dýrategundarinnar sem erum „hvítir karlar“ er kannski flest betur gefið en einmitt það; að hugsa. Auðvita kann það að vera að karldýr af öðrum litum séu heldur ekki gefin fyrir að hugsa, þó aldrei væri nema að hugsa sig um. Smá stund er kannski eitthvað sem mætti fara framá. Nei, við þessir hvítu, eigum, held ég, bara svo miklu betur skjalfest hugsunarleysi, jæja, eða grimmd.Jólatúrinn og jólapakki frá besta vininum
Nýverið kom út hjá Bókaútgáfunni Hólum ævisaga Magna Kristjánssonar, skipstjóra frá Neskaupstað. Það er Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku sem skráði og hér á eftir verður gripið niður í einn kafla bókarinnar, „Jólatúrinn – og jólapakki frá besta vininum“:Ljóti andarunginn á vinnumarkaðnum á Austurlandi
Það er frábært að lifa og starfa á Austurlandi. Hér eru vinaleg og samheldin samfélög, góðir skólar, ásættanlegt húsnæðisverð og gott veðurfar. Hér vil ég vera. Ég vil líka að börnin mín hafi þann valkost að búa á Austurlandi þegar þau komast á fullorðinsár. Ég hef þá von að samfélagið okkar vaxi og dafni sem framsækið, eftirsóknarvert atvinnusvæði með margbreytilegri menningu og fjölbreyttum hópi fólks.Hérasprettir - gamansögur af Fljótsdalshéraði
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina Hérasprettir eftir Baldur Grétarsson frá Skipalæk og Ragnar Inga Aðalsteinsson frá Vaðbrekku og Baldur Grétarsson frá Skipalæk. Þar má finna mörg gullkornin og verður nú gripið í bókinaNorðfjarðargöng (Vígð 11.11.2017)
Biðin þótti lýðum löng,leiðin „uppi“ nokkuð þröng,
en okkur hafa Oddskarðsgöng
engum verið betri.
Oft jók blástur kulda um kinn,
er kófi huldist vegurinn.
Því gladdist margur sérhvert sinn,
er sá und lok á vetri.