Í tilefni Alþjóðlega krabbameinsdagsins
Í dag, 4. febrúar er alþjóðalegur dagur gegn krabbameini. Markmiðið með því að vekja athygli á þessum degi er að koma í veg fyrir fjölda dauðsfalla vegna sjúkdómsins á heimsvísu, fræða einstaklinga og stjórnvöld og hvetja stjórnvöld til að grípa til aðgerða. Fyrir árin 2022-2024 er þemað; Jöfnuður í aðgengi krabbameinsgreindra að heilbrigðisþjónustu.Hættuleg vegferð orkumála
Stundum velti ég því fyrir mér á hvaða vegferð íslensk stjórnvöld eru þegar kemur að orkumálum hér á landi. Hvorki stefna né umræða bendir til þeirrar almennu skynsemi sem þarf að ríkja þegar um svo mikilvæga innviði er að ræða.
Í tilefni af degi leikskólans
Á degi leikskólans er viðeigandi að staldra við og spá í það hvaða hlutverki leikskólinn sinnir í samfélaginu. Þetta fyrsta skólastig barnanna okkar. Leikskólinn sinnir mikilvægu hlutverki hvað varðar menntun og mótun barna og verður að telja ábyrgð starfsfólks leikskóla afar mikla. Ábyrgð foreldra er ekki síður mikil en með þessum skrifum í dag er ætlunin að vekja athygli á mikilvægi samstarfs beggja aðila, og reyndar fleiri.Er nóg til og meira frammi?
Þegar við krakkarnir komum til ömmu Nennu í Framkaupstað fyrir margt löngu, þá bar hún kökur og kruðerí á borðið og sagði: „Fáið ykkur elskurnar, það er nóg til og meira frammi.“Gæluverkefni á kostnað barnanna í Fjarðabyggð
Fyrir áramót var samþykkt fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 og þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir 2025 - 2027. Skemmst er frá því að segja að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn fjárhagsáætluninni. Ástæðan er einföld. Núverandi meirihluti rekur sveitarfélagið með síauknum lántökum og gjaldskrárhækkunum en þorir á sama tíma ekki að horfast í augun við þann rekstarvanda sem sveitarfélagið er í og uppsafnaða viðhaldsþörf sem er um allt sveitarfélagið.
Skollaleikur í skólamálum
Á 89. fundi fjölskylduráðs 5. desember síðastliðinn, var tekið fyrir mál sem hefur síðan þá reynst með miklum ólíkindum. Meirihluti setti þá fram, án gagna, fullyrðingu um að laus leikskólapláss á Héraði yrðu uppurin innan fárra ára og það yrði að bregðast strax við. Hraðar en gert yrði með byggingu leikskóla á suðursvæði Egilsstaða eins og stendur til á árunum 2027-29. Lausnin á þessum meinta bráðavanda væri fólgin í því að taka húsnæði gamla Hádegishöfða aftur í notkun sem leikskóla.Staðreyndir um orkumál
Ágústa Ágústs skrifaði í Austurfrétt á dögunum um margt ágæta grein um orkumál þar sem megininntakið var vangaveltur um vegferð stjórnvalda í þeim málaflokki. Hún hins vegar fer ekki alveg rétt með staðreyndir og er mér bæði ljúft og skylt að leiðrétta nokkrar rangfærslur.
Eru bílastæðagjöld ISAVIA ohf. á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllum lögmæt?
Isavia ohf. hefur nýlega kynnt um að félagið hyggist hefja innheimtu á bílastæðagjöldum við innanlandsflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Ekki stendur til að hefja sambærilega gjaldtöku á Reykjavíkurflugvelli eða öðrum flugvöllum sem Isavia annast rekstur á að svo stöddu.