Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að Velferðarráðuneytið láti þegar í
stað af hendi skýrslu sem það lét vinna að beiðni Heilbrigðisstofnunar
Austurlands um framtíðarsýn stofnunarinnar. Í skýrslunni kemur meðal
annars að deilur við fyrri starfsmenn hafi reynt á yfirstjórnina og
lagðar til stórkostlegar hagræðingaraðgerðir í Fjarðabyggð.
Þrjátíu milljóna króna viðbótarframlag úr ríkissjóði bjargar því að loka
þurfi sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað í sumar. Það
dugir samt ekki til að koma í veg fyrir niðurskurð í þjónustu.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, verður meðal framsögumanna
á opnum fundi sem bankinn stendur fyrir á Reyðarfirði klukkan 20:00 í
Safnaðarheimilinu miðvikudaginn 15. febrúar.
Sveitarfélagið Fjarðabyggð var nýverið sýknað í Hæstarétti af kröfu
fyrrum nemanda grunnskóla Eskifjarðar sem hlaut örorku þegar hann hljóp á
glerhurð í skólanum. Dómurinn staðfesti þar með dóm héraðsdóms sem
rakti slysið til aðgæsluleysis stráksins.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna er
velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan
árið 1991 og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi
kvenna að fjármagni. Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 30 milljónir og
er hámarksstyrkur að þessu sinni kr. 3.000.000.
Prentverksmiðjan Héraðsprent á Egilsstöðum og Vélaverkstæði G. Skúlasonar eru fulltrúar Austfirðinga
á lista Creditinfo yfir „framúrskarandi fyrirtæki árið 2011“. Listinn
byggir á greiningu á því hvaða fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og
stöðugleikamati Creditinfo.
Tveir bæjarfulltrúar úr Fjarðabyggð eru meðal þeirra fjörutíu
einstaklinga sem skipa stjórn hins nýja stjórnmálaflokks, Bjartrar
framtíðar, sem stofnaður var formlega í dag.
Viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli í morgun þegar Fokker 50 vél
Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum kom þar inn til lendingar.
Viðvörunarbúnaður gaf til kynna að lendingarbúnaður vélarinnar væri ekki
í lagi.
Jens
Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, gefur kost á sér sem
annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður í embættið á
flokksráðsfundi í mars.