Bólusetningar gengu vel á Vopnafirði í gær
Á fjórða tug barna á Vopnafirði fengu í gær bólusetningu við mislingum. Gripið var til aðgerðanna eftir að smit kom upp í nærsamfélaginu um helgina. Fleiri tilfelli hafa ekki greinst enn.Búið að opna Öxi öðru sinni
Vegurinn yfir Öxi var opnaður í annað skiptið á þessu vori. Hún var opnuð snemma í mars en lokaðist aftur. Í framhaldinu verður staðan tekin á vegunum yfir Breiðdalsheiði og Mjóafjarðarheiði.Mislingasmit á Norðausturlandi
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur sent frá sér upplýsingar eftir að tilkynning barst um mislingasmit hjá fullorðnum einstaklingi á Norðausturlandi. Viðkomandi er í einangrun í heimahúsi. Einstaklingar sem sóttu hátíð á Vopnafirði um síðustu helgi eru í smithættu.Fjarðabyggð sek um að svara beiðni um smölun fjár of seint
Innviðaráðuneytið telur sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa brotið gegn stjórnsýslulögum með óhóflegum töfum á að svara beiðni landeiganda í Stöðvarfirði um að sveitarfélagið smalaði fé af landi hans. Ráðuneytið metur ekki hvort sveitarfélagið hafi verið skylt til að smala.Mengun í neysluvatni Breiðdælinga
Lítils háttar kólígerlamengun hefur mælst í neysluvatni á Breiðdalsvík og eru viðkvæmir neytendur hvattir til að sjóða allt vatn sem neyta skal í varúðarskyni.
Katrín með mest fylgi á Austurlandi
Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi forsetaframbjóðenda á Austurlandi. Baldur Þórhallsson fylgir henni þar á eftir.Breytt tímasetning fundar ráðherra vegna körfuboltaleiks
Tímasetningu fundar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra hefur verið breytt frá því sem upphaflega var auglýst þar sem fundurinn rakst á við leik Hattar og Vals í úrslitakeppni Íslandsmóts karla í körfuknattleik.Áfram snjóflóðahætta á Austurlandi
Snjóflóð halda áfram að falla í austfirskum fjöllum en ein sautján flóð hafa verið skráð í fjórðungum síðustu tíu dagana. Skíðamaður setti eitt slíkt af stað í Oddsskarði um helgina en engin slys urðu þó á fólki.