Klukkutíminn lengi að líða þegar beðið er eftir sjúkrabílnum
Slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum á Austurlandi kallar eftir því að viðbragðshópi á Borgarfirði eystra verið fundið skjól innan heilbrigðiskerfisins. Heimamenn séu viljugir til að bjarga sér en þurfi stuðning og heimildir til þess.Bók um Gullver: „Taktu eina, Norður-Atlantshafið er ekkert grín“
Árin 2012 og 2013 fóru tveir listamenn frá Seyðisfirði í túra með flaggskipi bæjarins, Gullveri NS-12. Videóhljóðlistaverk þeirra með upptökum úr ferðinni hefur farið víða um heim og aukaefni sem tengist því er nú komið út í bókaformi.Takmörkuð áhrif af virkjun Þverár á fiskgegnd í Hofsá
Virkjun Þverár í Vopnafirði ætti ekki að hafa teljandi áhrif á fiskigegnd í Hofsá, einni öflugustu veiðiá landsins. Nokkur áhrif verða á votlendi á virkjanasvæðinu.Sjö mánaða dómur fyrir að vera gripinn með tæp fjögur kíló af hassi
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann til sjö mánaða refsingar fyrir að hafa verið gripinn af tollvörðum á Seyðisfirði með tæp fjögur kílógrömm af hassi.Stafræn kynferðisleg áreitni hluti af veruleika ungs fólks
Sólborg Guðbrandsdóttir sem heldur úti instagram síðunni Fávitar hélt fyrirlestur í Menntaskólanum á Egilsstöðum og félagsmiðstöðinni Nýung á þriðjudaginn. Hún stofnaði instagramsíðuna til að berjast gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi.
Erfitt að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla
Vöntun hefur verið á daggæslu úrræðum á Fljótsdalshéraði undanfarin ár og dagforeldrar hafa verið nauðsynlegir til að brúa bilið eftir fæðingarorlof þangað til börn komast á leikskóla.
Einn hlýjasti apríl sem mælst hefur
Nýliðinn aprílmánuður var einn sá hlýjasti sem mælst hefur á Íslandi, sem og Austurlandi, samkvæmt samantekt Veðurstofunnar.Tvær milljónir í nýsköpunarverkefni
Pes ehf., sem meðal annars stendur að Krossdal byssuskeftunum, fékk hæsta styrkinn þegar úthlutað var úr Atvinnumálasjóði Fljótsdalshéraðs nýverið. Alls var tveimur milljónum úthlutað til sjö verkefna að þessu sinni.Telja opið sjókvíaeldi ógna atvinnulífi í Breiðdal
Forsvarsmenn Veiðifélags Breiðdæla vara við að eldi í opnum kvíum í sjó geti valdið miklum skaða á lífríki Breiðdalsár og þar með atvinnulífi í Breiðdal. Atvinnuuppbygging í sveitinni byggi að miklu leyti á laxveiðum.„Bara hefðir sem koma í veg fyrir að stelpur vinni þessi störf“
Í tilkynningu frá Síladarvinnslunni segir að karlavígið við landanir úr uppsjávarskipum sé nú fallið. Lengi hafi verið litið svo á að landanir úr uppsjávarskipum væru karlmannsverk, en breyting hafi orðið á því að undanförnu á Seyðisfirði þar sem þrjár konur komu að löndun um helgina.