Ótal verkefni hjá lögreglu og björgunarsveitum í ófærðinni
Töluvert hefur verið um útköll hjá bæði lögreglu og björgunarsveitum á Austurlandi undanfarinn sólarhring vegna mikils fannfergis í fjórðungnum.Snælduvitlaust veður á Möðrudalsöræfum: Lokunarhliðið brotnaði af
Björgunarsveitarmenn af Jökuldal eru á leið upp á Möðrudalsöræfi að sækja bíla sem eru í vandræðum þar. Lokunarskilti við Skjöldólfsstaði brotnaði af í veðurofsanum.Loðnuveiðar: Vonum að veður og veiðar verði þokkaleg það sem eftir er
Veiði á loðnu hefur glæðst í vikunni með nýjustu göngunni. Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar vonast til að hægt verði að veiða nógu lengi til að klára kvótann.Sigurður Kári 12 ára býður upp á snjómokstur: Hann er stórhuga og fær gjarnan svona hugmyndir
Þegar blaðamaður Austurfréttar átti leið um sjoppu á Eskifirði fyrir skemmstu vakti athygli hans auglýsing sem hékk þar upp á vegg. Þar var 12 ára strákur að bjóða uppá snjómoksturs þjónustu. Austurfrétt langaði að vita meira um þennan snilling og hringdi í númerið sem kom fyrir á auglýsingunni.Allt á kafi í snjó: Foreldrar á Héraði beðnir um að halda börnum sínum heima
Foreldrar skólabarna á Fljótsdalshéraði eru beðnir um að hafa börn sín heima þar til færð er orðin betri á svæðinu. Gríðarlegt fannfergi hefur safnast þar upp í nótt.