„Þegar við kynntumst var það nokkuð ljóst að þetta var áhugamál númer eitt, tvö og þrjú og ég sá að ef þetta samband ætti að eiga einhverja framtíð þá varð ég bara að vera með,“ segir Unnur Sveinsdóttir, en hún og maður hennar, Högni Páll Harðarson hafa ferðast um heiminn þveran og endilangan á mótorhjólum. Að austan á N4 heimsótti þau á dögunum.
Systur í Soroptimistaklúbbi Austurlands standa fyrir ljósagöngu á Egilsstöðum á morgun þar sem gengið verður gegn kynbundnu ofbeldi. Systur úr klúbbnum vöktu athygli á göngunni og átakinu í verslunum á Egilsstöðum í dag.
Norðfirðingurinn Daníel Geir Moritz er aðalhvatamaðurinn að tónleikunum Jólastressi sem haldnir verða í Reykjavík eftir tíu daga. Daníel Geir heldur tónleikana í tilefni þess að tíu ár eru liðin síðan hann átti sigurlag í jólalagakeppni Rásar 2 og fær fleiri Austfirðinga í lið með sér.
Kvennasveitin Dúkkulísurnar stendur á næstunni fyrir þrennum jólatónleikum og verða þeir fyrstu tveir í Valaskjálf á Egilsstöðum um helgina. Sveitin spilar þar sín uppáhalds jólalög í bland við eigið efni, þar á meðal nýtt jólalag.
Áhersla er á að fjölga notendum og neytendum menningar með að fjölga menningarverkefnum sem sérstaklega eru ætluð börnum. Vel heppnuð íslensk barnamenningarverkefni voru kynnt á ráðstefnu sem Austurbrú stóð fyrir í gær.
Austfirskir tónlistarmenn koma saman til að halda upp á aldarminningu Jóns Þórarinssonar, tónskálds, í Egilsstaðakirkju á sunnudag. Veðrið hefur sett strik í reikning nokkurra viðburða sem áttu að vera í kvöld og á morgun.
Ár er liðið síðan hugmyndafræði Cittaslow var innleidd í Djúpavogsskóla. Mikil vinna liggur að baki verkefninu og áframhaldandi þróunarvinna er fram undan en Djúpavogshreppur er eina sveitarfélagið á Íslandi sem er hluti af hæglætishreyfingunni Cittaslow.
Skagastúlkan Rebekka Sif Sigurðardóttir er ánægð með námið við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Í hennar huga er spennandi að prófa að búa á heimavistinni og þar kann hún vel við sig.
Blindrahundur, heimildamynd um myndlistarmanninn Birgi Andrésson, verður sýnd í Herðubreið á Seyðisfirði um helgina. Birgir átti hús þar í bænum og kvikmyndagerðarfólkið hefur búið þar undanfarin ár.