Sjötugum boðið í afmæliskaffi
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað stóð fyrir kaffisamsæti í tilefni 70 ára afmælis Egilsstaðabæjar síðasta föstudag. Þangað var boðið íbúum sveitarfélagsins, ásamt mökum, sem eru jafn gamlir þorpinu.
„Í raun gætu ég og amma mín gert sömu æfinguna“
„Ég byrjaði í „Krakka Crossfit“ sumarið 2015 vegna þess að foeldrar mínir voru í Crossfit, mér fannst það spennandi og ég vildi prófa eitthvað nýtt,“ segir Bjartur Berg Baldursson, 14 ára Egilsstaðabúi sem hafnaði í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti unglinga í Ólympískum lyftingum.Fimm Austfirðingar í Biggest Loser Ísland
Fimm Austfirðingar eru meðal þeirra tólf sem skráðir til leiks í fjórðu þáttaröðinni af Biggest Loser Ísland sem fer í loftið í kvöld.Heimsókn Vigdísar eftirminnilegust
„Stundum finnst mér að það þyrfti einhver einn aðili í Fjarðabyggð að tryggja að þetta glatist ekki, því það er góður möguleiki,“ segir Gunnar Hjaltason um myndir og myndbönd sem einstaklingar hafa safnað og er ómetanlega heimildasaga. N4 heimsótti Gunnar og konu hans Höllu Einarsdóttur fyrr í haust.„Þetta er geggjað“
„Þetta er skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir, trommuleikari á Egilsstöðum, sem fékk tækifæri til að flytja tónlist DIO ásamt fleiri ungum tónlistarmönnum úr fjórðungnum og tveimur af bestu söngvurum landsins á dögunum. N4 leit við á tónleikinum.Fyrirlestrar um tölvu- og netfíkn
Þorsteinn K. Jóhannsson, framhaldsskólakennari, heldur tvo fyrirlestra um tölvu- og netfíkn hjá Starfsendurhæfingu Austurlands á Egilsstöðum í dag.
„Ég er svona hreppseign“
„Ég kem til þess að vera hérna, láta mér líða vel og umgangast fólkið,“ segir Stella Sveinsdóttir, sem dvelur í torfbæ sínum Lindarbakka á Borgarfirði eystri öll sumur. N4 heimsótti Stellu í sumar.Þurfti að hlaupa af fundi í lögreglubúninginn
Sveitastjórnarfulltrúar á Austurlandi eru almennt í annarri vinnu samhliða störfum sínum sem kjörnir fulltrúar. Það veldur stundum árekstrum eins og hjá Jóni Birni Hákonarsyni á síðasta fundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).