Nýtt verksmiðjuhús HB Granda á Vopnafirði, sem hýsa mun fiskmjölsverksmiðju félagsins, er nú sem óðast að taka á sig mynd. Framkvæmdum miðar vel en starfsmenn Héðins hf. hófu að reisa stálgrind verksmiðjuhússins um síðustu mánaðamót. Áður var búið að steypa hús, sem hýsa mun stjórnstöð verksmiðjunnar, skrifstofur, rannsóknastofu og starfsmannarými.
Anna Marta Guðmundsdóttir, bóndi á Hesteyri í Mjóafirði, lést í fyrrinótt á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Hún hefði orðið áttræð 29. september næstkomandi.
Flugslysaæfing verður haldin á flugvellinum á Egilsstöðum á morgun laugardaginn 12. september. Æfingin verður sú þriðja á þessu ári. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru farþegar á Egilsstaðaflugvelli 47.934, áætlunarflug á flugvöllinn er 3 - 4 sinnum á dag milli Reykjavíkur og Egilsstaða.
Samkvæmt upplýsingum frá Veiðiþjónustunni Strengjum kemur sumarið ágætlega út í ám félagsins og langbest í Hrútu, þar sem 580 laxar eru komnir í land og aðeins þarf að veiða um 50 laxa í viðbót til að slá nýtt veiðimet. Veitt verður út mánuðinn í ám Strengja; Breiðdalsá, Jöklu, Minnivallalæk og Laxá í Nesjum.
Fyrsti stúdentahópurinn sem kemur í Breiðdalssetur til rannsókna og náms eftir að setrinu var komið á fót dvaldi þar í lok ágúst og byrjun september. Hópinn leiddi Þorvaldur Þórðarson, prófessor í jarðvísindum við Háskólann í Edinborg. Lögð var áhersla á að skoða gosbergsmyndanir og gosbergsstafla. Þorvaldur segir gríðarmikla möguleika felast í Breiðdalssetri og jarðfræðisafni Georges Walker.
Mengun þungmálma og annarra eiturefna í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið (AMSUM 2008). Styrkur kadmíns í íslenskum kræklingi er hærri en í kræklingi frá hafsvæðum Evrópu og Ameríku.
Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. Kínverjar bera ægishjálm yfir aðrar fiskveiðiþjóðir hvað aflamagn varðar. Heildarafli þeirra árið 2006 var 17,4 milljónir tonna. Næstir á eftir þeim koma Perúmenn með 7 milljónir tonna.
Í tilefni af góðri veðurspá næstu daga ætla Seyðfirðingar að bjóða öllum, gestum og gangandi, í sund án endurgjalds í dag og á morgun. ,,Fögnum veðurblíðunni, kælum okkur í sundi og njótum þess að vera til. Sólarkveðjur frá Seyðisfjarðarkaupstað,“ segja heimamenn.