Meiri flokkun og endurvinnsla á Fljótsdalshéraði
Nú styttist í að þær breytingar á sorphirðu á Fljótsdalshéraðs, sem ákveðnar hafa verið með samningi við Íslenska gámafélagið, taki gildi, með enn frekari áherslu á flokkun og endurvinnslu.
Nú styttist í að þær breytingar á sorphirðu á Fljótsdalshéraðs, sem ákveðnar hafa verið með samningi við Íslenska gámafélagið, taki gildi, með enn frekari áherslu á flokkun og endurvinnslu.
Loks hefur fundist lausn á því hver á að bera kostnað vegna viðgerðar á þakköntum Fjarðabyggðarhallarinnar á Reyðarfirði. Landsafl, dótturfélag Landic Property skal borga brúsann samkvæmt dómskvöddum matsmanni. Málið hefur verið til meðferðar í hartnær tvö ár. Áætlaður kostnaður er um 18 milljónir króna. Landsafl byggði Fjarðabyggðarhöllina og leigir hana til sveitarfélagsins Fjarðabyggðar.
Vísindagarðurinn vill vekja athygli á Vísindakaffi á morgun, þar sem Sverrir Aðalsteinn Jónsson líffræðingur mun halda fyrirlestur um gróðurfarsögu á Fljótsdalshéraði síðustu tvö þúsund árin. Fyrirlesturinn verður haldinn í Gistihúsinu Egilsstöðum og hefst kl. 16:30.
Unnið er að samkomulagi milli Flugstoða og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar um rekstur Norðfjarðarflugvallar. Þjónustusamningur milli þessara tveggja aðila er útrunninn og hafa flugstjórar sjúkraflugs hjá Mýflugi tjáð áhyggjur af ástandi vallarins til heilbrigðis- og samgönguráðuneytis með bréfi.
Í vikunni boðaði móttökufulltrúi nýrra íbúa til fundar á Stöðvarfirði. Á fundinn mættu embættismenn Fjarðabyggðar, fulltrúar frá Krabbameinsfélagi Austurlands og Þekkingarnetinu og fjöldinn allur af Stöðfirðingum.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að hækka grunnframfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 20%, samhliða ýmsum aðgerðum sem ætlað er að tryggja sparnað í námslánakerfinu og atvinnuleysistryggingakerfinu sem þessari hækkun svarar.
Hornfirðingurinn og Nesjamaðurinn Pálmar Hreinsson hefur undanfarin þrjú ár búið í Svíþjóð og starfar sem fitness þjálfari hjá fótboltaliði í Stokkhólmi. Hann tók um sl. helgi þátt í Sænska meistaramótinu í Cross-Fit og gerði sér lítið fyrir og varð Svíþjóðarmeistari í þessari vinsælu og stöðugt vaxandi þrekíþrótt.
Málþing um valdeflingu í verki, á vegum Hlutverkaseturs, Rauða kross Íslands, Félags- og tryggingamálaráðuneytisins og SAust, verður haldið í Safnaðarheimilinu Neskaupstað á morgun, 10. september nk. kl. 8.30 – 16.00. Málþingið á erindi við alla, fagfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu, stjórnmálamenn, atvinnulíf, menntastofnanir sem og almenna borgara.
Síðustu forvöð eru að sjá sýningu Kristjáns Steingríms Jónssonar, Staðir, í sýningarsal Skaftfells. Síðasti sýningardagur er 15. september.Á sýningunni í Skaftfelli eru málverk, teikningar og ljósmyndir sem Kristján hefur unnið undanfarin misseri. Verkin fjalla með einum eða öðrum hætti um staði, þar sem jarðvegur er notaður til að skapa vangaveltur um fjar- og nærveru áhorfandans.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.