Forsætisráðherrar Norðurlandaþjóðanna funda á Egilsstöðum á morgun, sunnudag og mánudag.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands stýrir fundi, enda gegna Íslendingar formennsku í Norrænu ráðherranefndinni um þessar mundir. Á dagskrá eru ýmis mál á alþjóðavettvangi og vettvangi Evrópusambandsins sem snerta Norðurlöndin. Meðal annars verður fjallað um undirbúning Íslendinga fyrir umsókn að aðild að ESB.
Sverrir Aðalsteinn Jónsson flutti 5. júní fyrirlestur til meistaraprófs í jarðfræði við Háskóla Íslands. Fjallaði fyrirlesturinn um gróðurfarslega sögu Fljótsdalshéraðs síðustu tvö þúsund árin.
Megintilgangur rannsóknar þeirrar sem fyrirlesturinn byggir á var að afla gagna sem gætu skýrt gróðurfarssögu Fljótsdalshéraðs síðastliðin 2000 ár og kanna orsakir hnignunar skóga héraðsins. Áhrif mannsins virðast hafa skipt sköpum hvað varðar ástand skógarins eftir landnám en verðurfar virðist hafa haft minni áhrif. Leiðbeinendur voru Ólafur Ingólfsson, prófessor og dr. Ólafur Eggertsson og prófdómari var Egill Erlendsson.
Vegfarandi hafði samband við blaðið og sagði frá því að illa útleikið bílhræ sé skammt utan vegar í Breiðdalsheiðinni Héraðsmegin, skammt ofan Axarafleggjara. Hann segir líta út fyrir að menn séu að aka fram á alvarlegt bílslys og bregði því við, en raunin sé sú að bíllinn sé búinn að standa þarna í næstum hálft ár. Enginn virðist sýna tilburði til að fjarlægja hann, hvorki eigandi né yfirvöld. Bíllinn er illa leikinn, beyglaður, dekkjalaus og allar rúður mölvaðar úr. Vegfarandinn vildi skora á þar til bær yfirvöld að gangast fyrir því nú þegar að bíllinn verði fjarlægður.
Egilsstaðakirkja fagnar þrjátíu og fimm ára afmæli sínu sunnudaginn 14. júní. Jafnframt er á þeim tímamótum haldið upp á lok endurbóta á kirkjunni og safnaðarheimili að Hörgsási 4, gegnt kirkjunni verður formlega tekið í notkun.
28. maí var formlegur stofnfundur Fjarðaforeldra, sem er svæðisráð foreldrafélaga grunnskólanna í Fjarðabyggð. Stjórnarmenn eru tíu talsins, tveir foreldrar frá hverjum grunnskóla í Fjarðabyggð, annar úr foreldrafélaginu og hinn úr skólaráðinu. Þóroddur Helgason fræðslustjóri í Fjarðabyggð var foreldrafélögunum innan handar við stofnun ráðsins.
Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun á embættisfærslu yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar og vísaði í kjölfarið máli hans aftur til ríkissaksóknara til frekari meðferðar. Ríkissaksóknari hafði áður hafði vísað því frá, líkt og lögregluembættið á Eskifirði þar áður. Þá hefur Landlæknisembættið einnig lokið sínum athugunum á verklagi læknisins og gerir athugasemdir við það, en þó ekki þannig að ástæða sé til áminningar eða íþyngjandi aðgerða af hálfu embættisins.
Skógrækt ríkisins tók upp á þeirri nýbreytni í byrjun júnímánaðar að bjóða gestum þjóðskóganna upp á skemmtilega viðbót við kyrrðina, fuglasönginn og þytinn í trjánum. Við stíga í skógunum standa nú staurar með símanúmeri sem hægt er að hringja í og hlusta á fróðleik eða skemmtun tengda umhverfinu.
Stjórn Búnaðarsambands Austurlands hvetur sveitarfélög til að draga lærdóm af máli Stórhóls í Álftafirði og beita hörðum viðurlögum, miklu fyrr en raun bar vitni. Í ályktun sambandsins frá því í gær segir að heimildir búfjáreftirlits og dýralækna séu takmarkaðar og skaðinnmikill þegar svona sé komið. Stjórnin óttist áhrif slíkra mála á ímynd dilkakjötsframleiðslu bæði innanlands og utan, því nú á tímum ljósvakamiðla geti markaður skaðast um allan heim vegna fréttaflutnings eins og þessa. Jafnframt óskar stjórnin þess að Djúpavogshreppur ogMatvælastofnun sjáitil þess að málum verði komið í fullkomlega ásættanlegt ástand strax eða viðkomandi gert að hætta búskap ella.
Björg Þorvaldsdóttir, deildarstjóri sérkennslu í Nesskóla í Neskaupstað, hlaut verðlaunin Dugnaðarforkur Heimilis og skóla á dögunum. Var hún ein þriggja sem hlaut slík verðlaun á landsvísu. Björg var tilnefnd af foreldrafélagi Nesskóla. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin. 38 tilnefningar bárust til foreldraverðlaunanna að þessu sinni og voru 34 verkefni tilnefnd.