Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir árið 2009 í gær. Hún felur í sér töluverðan halla og verður endurskoðuð í apríl í vor. Áætlunin var samþykktum með öllum atkvæðum. Laun bæjarfulltrúa verða skorin niður um 15%.
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi og varaformaður samgöngunefndar Alþingis, hét því á almennum stjórnmálafundi í Neskaupstað í vikunni að fylgja því fast á eftir á þingi að Norðfjarðargöngum yrði ekki frestað frekar en orðið er. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sagði við sama tækifæri að settur yrði lögreglustjóri á Austurlandi og skilið á milli valds sýslumanna og lögreglustjóra og sýslumanna og tollgæslunnar.
Útgerðir leita nú nýrra leiða í afla þar sem útlitið á loðnu er ekki beisið og bróðurpartur síldar sem veiðist ekki hæfur til manneldis. Auk Hugins VE, sem verið hefur við tilraunaveiðar á laxsíld, er Birtingur á leið í leit að henni og Loðnuvinnslan að gera skip og veiðarfæri klár í hið sama.
Ný líkamsræktaraðstaða var tekin í notkun í íþróttahúsinu á Stöðvarfirði í gær. Rekstur hennar er í umsjón Ungmennafélags Súlunnar. Langur aðdragandi hefur verið að opnun aðstöðunnar en með velvilja bæjarbúa hefur nú loks tekist að klára málið. Góð mæting var við opnunina og vonandi nýtist nýja stöðin Stöðfirðingum vel til heilsubótar.
Knattspyrnumaðurinn Sveinbjörn Jónasson er genginn til liðs við
úrvalsdeildarlið Grindavíkur. Sveinbjörn, sem er á 23ja aldursári,
gerði þriggja ára samning við Grindavík.
Stjórn Vísindagarðsins ehf. á Egilsstöðum hefur ráðið Pétur Bjarnason í stöðu framkvæmdastjóra. Hann hóf störf 1. janúar og tekur við af Ívari Jónssyni, sem verið hefur framkvæmdastjóri Vísindagarðsins frá 15. júní 2007.
Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði á almennum stjórnmálafundi á Djúpavogi í gærkvöld að ekki hefði verið ákveðið endanlega hvernig samgönguframkvæmdum verður forgangsraðað, en þær myndu allar frestast eitthvað. Ráðuneytið veit ekki enn hvað það mun hafa úr að spila á næstu tveimur til þremur árum og það mun ekki skýrast fyrr en líða tekur á þetta ár.
Kaldar strendur - heitir straumar er nafn á samsýningu tólf listamanna frá Íslandi og Noregi. Sýningin var sett upp á þremur stöðum í Norður Noregi á síðastliðnu ári og verður opnuð í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar.