Björn Bjarnason, Ólöf Nordal og Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, verða með fundi í Fjarðabyggð í næstu viku.
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir á Fjarðahóteli Reyðarfirði á þriðjudag klukkan 20:00, þar sem Björn og Arnbjörg verða framsögumenn og á Hótel Capitano á Norðfirði á miðvikudag klukkan 12:00, en þar hafa Björn og Ólöf framsögu.
AFL Starfsgreinafélag hefur fest kaup á Búðareyri 1 á Reyðarfirði. Þar verður starfrækt námsver á vegum AFLs, Verkmenntaskóla Austurlands og Þekkingarnets Austurlands. Að auki flyst Reyðarfjarðarskrifstofa AFLs í húsið. Frágangur við neðri hæð þess er nú á lokastigi og hefst starfsemi þar í lok næstu viku.
Í morgun um kl. 08 varð bílslys nærri Högum í Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Eskifirði voru þrír farþegar í bílnum, sem valt. Lögregla vildi ekki gefa frekari upplýsingar um atburði, en samkvæmt heimildum Austurgluggans var fólkið flutt á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað með tveimur sjúkrabifreiðum. Slökkvilið Fjarðabyggðar sendi sjúkrabíla og tækjabíl á vettvang, þar sem farþegi var fastur í bifreiðinni sem valt. Þegar til kom þurfti þó ekki að beita klippum til að ná honum út. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan farþeganna, en þegar síðast fréttist var búið að senda einn þeirra með sjúkraflugi til Reykjavíkur til aðhlynningar. Lögregla hefur málið til rannsóknar.
Á föstudag tóku nýir eigendur við versluninni Við Voginn á Djúpavogi. Eigendaskiptin fóru fram fyrir milligöngu Djúpavogshrepps, í fullu samráði við fyrri eigendur, að því er segir í frétt frá sveitarfélaginu. Fyrirtækið er nú í eigu Vogs ehf. og Djúps ehf., en eigendur þeirra fyrirtækja eru Emil Karlsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Jón Karlsson og Jónína Guðmundsdóttir.
Fyrri eigendur vilja koma á framfæri þökkum til heimamanna, starfsmanna, allra viðskiptavina og birgja fyrir ánægjuleg viðskipti í u.þ.b. tvo áratugi. Jafnframt senda þeir árnaðaróskir til hinna nýju eigenda.
Andri Bergmann og Hafþór Valur verða með órafmagnaða tónleika í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í kvöld, fimmtudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og er aðgangseyrir 1.000 kr. Flutt verða lög úr smiðju þeirra félaga ásamt fleirum góðum í bland. Kári Þormar forstöðumaður Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að mæta og efla þannig austfirskt framtak.
Knattspyrnukonan Sonja Björk Jóhannsdóttir var á þriðjudag útnefndur
íþrótta- og knattspyrnumaður Hattar fyrir árið 2008. Íþróttamenn
félagsins voru heiðraðir á þrettándabrennu þess.
Breiðdalshreppur hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að í stað þess að miða við landaðan afla í úthlutun byggðakvóta, verði byggðakvóta sveitarfélagsins úthlutað jafnt á þá báta sem sækja um og uppfylla skilyrði reglugerðar um úthlutunina að öðru leyti.
Vegagerðin kynnti í gær í Neskaupstað verkefnið Norðfjarðarvegur um Norðfjarðargöng. Á annað hundrað manns skrifuðu sig í gestabók sem lá frammi. Fólk virtist misánægt og flestir höfðu búist við að fá meiri upplýsingar og skýrari svör, enda uggandi eftir umræður síðustu daga um að líklega komi til frestunar á framkvæmdinni.
,,Ég tel mesta óráð að við göngum í Evrópusambandið,“ sagði Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi og formaður þingflokksins. Á almennum stjórnmálafundi Sjálfstæðisflokksins á Egilsstöðum í gær, reifaði hún helstu annmarka á inngöngu Íslands í Evrópusambandið, ekki síst í tengslum við stefnu þess í sjávarútvegi og landbúnaði. Ásta Möller þingmaður sagði við sama tækfæri að stjórnarsamstarfið stæði afar traustum fótum.