Fjárframlög til fræðaseturs Háskóla Íslands á Egilsstöðum eru tryggð á þessu ári. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs fagnaði því á fundi sínum nýverið. Í bókun ráðsins segir að væntingar séu miklar til starfsemi fræðasetursins.
Í dag opnaði ný sýning í menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu; Kaldar strendur – heitir straumar. Um er að ræða samsýningu tólf íslenskra og norskra listamanna á málverkum, textíl, ljósmyndum og myndbandsverkum. Þau hafa áður verið sýnd á þremur sýningum í Norður-Noregi í tengslum við menningarsamstarf Austurlands og Noregs.
Íbúafundur var haldinn á Fáskrúðfirði í gærkvöld og mættu þangað um eitthundrað manns. Auk annarra umfjöllunarefna voru málefni áhaldahúss á Fáskrúðsfirði í brennidepli og mikill hiti í fundargestum, sem mótmæltu því harðlega að leggja ætti áhaldahúsið/þjónustumiðstöðina niður og bjóða út verkefnin.
Stór hjörð hreindýra er skammt frá veginum yfir Fagradal, Reyðarfjarðarmegin, og telur hún um níutíu dýr; fullorðna tarfa, kvígur og kálfa. Hjörðin hefur verið á þessum slóðum í vetur og kvarta bílstjórar sáran yfir því að önugt sé að aka þessa leið snemma morguns í myrkrinu. Þá hlaupi dýrin þvers og kruss yfir veginn og megi menn hafa sig alla við að aka ekki á þau.
Vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát á dalnum.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur lagt til við bæjarstjórn að sex nefndir innan sveitarfélagsins verði sameinaðar í þrjár.
Byggingar- og skipulagsnefnd á að sameina þjónustunefnd, íþrótta- og frístundanefnd menningarnefnd og umhverfis- og náttúruverndarnefnd sameinist dreifbýlis- og hálendisnefnd. Talið er að með þessum hætti megi draga verulega úr stjórnsýslulegum útgjöldum bæjarfélagsins.
Boðað hefur verið til mótmælafundar í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum kl. 15:00 á morgun. Til fundarins er boðað að fyrirmynd mótmælafunda á Austurvelli í Reykjavík og víðar seinustu mánuði til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í kringum efnahagshrunið og krefjast kosninga. Frummælendur á fundinum á Egilsstöðum verða Björgvin Valur Guðmundsson og Ingunn Snædal.
Í liðinni viku var þorskkvótinn aukinn um 30.000 tonn eins og flestir vita, en hvað þýðir þetta í raun fyrir lítil samfélög eins og Fáskrúðsfjörð? Jú það að til dæmis bara Loðnuvinnslan hf. fær í sinn hlut um það bil 275 tonn, sem er að sögn Kjartans Reynissonar útgerðastjóra hartnær mánaðar vinnsla til sjós og lands og munar um minna.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið að frá 1. febrúar næstkomandi verði opnunartími bæjarskrifstofu á Norðfirði frá kl.12:00 – 15:00 alla virka daga. Bæjarskrifstofan er nú opin frá klukkan níu á morgnana til fjögur síðdegis.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir árið 2009 í gær. Hún felur í sér töluverðan halla og verður endurskoðuð í apríl í vor. Áætlunin var samþykktum með öllum atkvæðum. Laun bæjarfulltrúa verða skorin niður um 15%.