Heimir og Páll ráðnir þjálfarar hjá Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar
Í dag skrifaði Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) undir samninga við þjálfarana Heimi Þorsteinsson og Pál Guðlaugsson. Markmið þeirra er að halda liðinu í 1. deild. Ekkert liggur ljóst fyrir um breytingar á liðinu.
Páll og Heimir taka við Fjarðabyggð
Samkvæmt heimildum Austurgluggans verða Heimir Þorsteinsson og Páll Guðlaugsson kynntir sem nýir þjálfarar Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar í dag. Nýr þjálfari og samningar við leikmenn eru efni blaðamannafundar sem félagið hefur boðað til síðdegis.
Höttur mætir Keflavík í körfunni
Höttur mætir Keflavík um miðjan desember skv. drætti í Subwaybikarnum í gær.
Diddú og Egill í Kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð
Kirkju- og menningarmiðstöðin í Fjarðabyggð býður Austfirðingum á glæsilega tónleika um næstu helgi. Marka þeir upphaf aðventunnar og ættu að koma fólki í rétta skapið fyrir aðdraganda jóla. Kór Fjarðabyggðar heldur þá sína árlegu aðventutónleika og hefjast þeir í menningarmiðstöðinni á Eskifirði kl. 16.
Hátíð skáldsins í Breiðdal
Viðar og Vilberg með Leikni
Viðar Jónsson og Vilberg Marinó Jónasson hafa skrifað undir tveggja ára samning um þjálfun meistaraflokks karla hjá Leikni. Drengirnir eru ekki ókunnugir félaginu því Vilberg þjálfaði m.fl.kk. árin 2005-2007 og Viðar m.fl.kvk sama tíma. Einnig hafa þeir þjálfað yngriflokka félagsins um nokkurra ára skeið.
Fleiri telja álver jákvæð fyrir íslenskt efnahagslíf
Rúmlega 78 prósent landsmanna telja að álver hafi frekar eða mjög jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Rúmlega átta prósent telja áhrifin frekar eða mjög neikvæð. Þetta kemur fram í niðurstöðum landskönnunar sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Alcoa Fjarðaál.Hægir á uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs
Sýnt er að hægja muni umtalsvert á uppbyggingu í nýjum Vatnajökulsþjóðgarði vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Nú hefur til dæmis verið ákveðið að fresta byggingu þjóðgarðsgestastofu á Skriðuklaustri í Fljótsdal. Byrja átti á byggingunni í haust.