Fljótsdælingar gefa sér þrjá daga til að plokka rusl
„Þetta er stór dagur að okkar viti og þar sem ekki hentar öllum að taka til hendinni þennan ákveðna plokkdag þá lengdum við í þessu hjá okkur,“ segir Ásdís Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri Fagrar framtíðar í Fljótsdal.
Norðurljós yfir Djúpavogi vekja alþjóðaathygli
Myndskeið ástralsks ljósmyndara af norðurljósum yfir nágrenni Djúpavogs fer nú víða um heim á alþjóðlegum fréttamiðlum og samfélagsmiðlum.Fjarðarheiðin vettvangur Íslandsmeistaramóts í snjókrossi
„Við byrjum lætin strax milli 9 og 10 um morguninn þegar menn hefja æfingar og tímatökur fyrir mótið sjálft sem ætti að hefjast um eða uppúr hádeginu,“ segir Steinþór Guðni Stefánsson úr akstursíþróttaklúbbnum Start, en klúbburinn er að búa sig undir að halda lokaumferð Íslandsmótsins í snjókrossi (snocross) á Fjarðarheiði á laugardaginn kemur.
Páskahelgin: Guðmundur R. flytur öll bestu lögin
Norðfirski söngvarinn Guðmundur R. Gíslason heldur stórtónleika í Egilsbúð um helgina þar sem hann flytur sín vinsælustu lög ásamt vinum. Fleiri stórviðburðir eru um helgina en líka smærri fyrir þau sem það kjósa.Breyta í Skaftfelli
Fjórir efnilegir listamenn eiga verk á sýningunni Breyta í Skaftfelli Seyðisfirði. Verkin eru meðal annars afrakstur dvalar þeirra í gestavinnustofu menningarmiðstöðvarinnar.„Gæti orðið með allra bestu Bræðslunum hingað til“
„Miðasalan ætti að hefjast strax í næstu viku og miðað við tónlistarfólkið sem fram kemur grunar mig að þeir miðar verði fljótir að fara,“ segir Magni Ásgeirsson, tónlistarmaður og forsprakki Bræðslunnar á Borgarfirði eystra.