Kolfreyjuprestakall auglýst
Biskup Íslands hefur auglýst laust til umsóknar embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli frá 1. september. Skipað verður í embættið til fimm ára.
Davíð Þór predikaði á Hjaltastað
Davíð Þór Jónsson, guðfræðinemi, rithöfundur og spurningahöfundur, flutti predikun dagsins við messu í Hjaltastaðakirkju á Fljótsdalshéraði í morgun.
Bræðslan 2009: Íslenskt já takk
Nokkrir miðar eru eftir á tónlistarhátíðina Bræðsluna sem fram fer á Borgarfirði eystri á laugardag. Með viðburðum sem í raun eru utan dagskrár teygir gleðskapurinn sig yfir þrjá daga.Skiptum á búi Hafsíldar lokið
Skiptum á þrotabúi Hafsíldar hf. á Seyðisfirði lauk fyrr í þessum mánuði. Samþykktar almennar kröfur námu 235 milljónum króna en ekkert fékkst upp í þær.
Myndarleg uppskeruhátíð LungA
Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA, lauk í gær með uppskerhátíð og tónlistarveislu. Austurglugginn var meðal þeirra sem lagði leið sína á Seyðisfjörð.
Kajakræðari rær í kringum landið
Gísli Friðgeirsson ræðari er nú á leið sinni í umhverfis Ísland á kajak. Ferðin hófst þann 1.júní í Reykjavík og hefur gengið ágætlega. Hann er núna á ferð með fram Suðurströndinni.
Aðalmeðferð í Djúpavogssmygli
Aðalmeðferð í máli gegn sex karlmönnum sem sakaðir eru um að hafa reynt að smygla ríflega eitt hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins með skútu í gegnum Djúpavog í apríl fer fram í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Gott í gogginn: Kerfilpestó, fíflakaffi og rabarbaraís að hætti Frú Lúlú
Austurglugginn hefur lagt það í vana sinn að birta ómótstæðilegar mataruppskriftir fyrir helgar til að auka við innblástur austfirskra kokka. Að þessu sinni deilir Hákon Guðröðarson á Frú Lúlú í Neskaupstað með okkur brakandi ferskum sumaruppskriftum. Þar er ýmislegt nýnæmi á ferð.