Hornfirðingur afhendir bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í næstu viku
Soffia Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur mun afhenda bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í Helsinki þriðjudaginn 28. október n.k. Soffía Auður hefur búið á Höfn í rúm tvö ár. Auk fræðistarfa kennir hún bókmenntir við Háskóla Íslands og hefur starfað fyrir Háskólasetrið á Hornafirði.
Viljayfirlýsing um fimmtíu þúsund fermetra gagnaver
Fljótsdalshérað undirritaði í dag viljayfirlýsingu við fyrirtækið Greenstone ehf. um byggingu á allt að fimmtíu þúsund fermetra gagnaveri í sveitarfélaginu. Greenstone hefur jafnframt ritað undir viljayfirlýsingu við Landsvirkjun varðandi útvegun á að minnsta kosti 50 MW af orku. Gagnaverið gæti skapað um 20 bein störf og annað eins af óbeinum störfum.
Olweusarkynning fyrir þá sem starfa með börnum og unglingum
Tvö innbrot á Reyðarfirði
Í nótt var brotist inn á tveimur stöðum á Reyðarfirði. Í söluskála Shell var einhverju stolið en því meira skemmt, svo sem sjóð- og lottóvélar, myndavélakerfi og rúður voru brotnar. Þá var brotist inn á Fosshótel skammt frá og sjóðvél eyðilögð. Hugsanlegt er talið að sömu aðilar hafi verið á ferð í báðum tilfellum. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins.
Fjarðabyggð skorar á stjórnvöld að standa vörð um Sparisjóðina
Fundur bæjarráðs Fjarðabyggðar í gærkvöldi beindist meðal annars að því ástandi sem nú er uppi í efnahagsmálum þjóðarinnar, og umheimsins.
Byggingaframkvæmdum frestað
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur ákveðið að fresta framkvæmdum við nýjan leikskóla á Eyrinni í Neskaupstað og 3. áfanga Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði. Ástæðuna má rekja til skorts á lánsfé og segja bæjaryfirvöld ekki annan kost í stöðunni.Nýr kafli Hringvegur upp úr Jökuldal opnaður
Nýr vegur upp úr Jökuldal var opnaður í gærkvöld. Veglínan er um Skjöldólfsstaðahnjúk og leysir af hólmi veg sem var nokkru innar og tekur af erfiðar beygjur. Þó vegurinn hafi verið opnaður er framkvæmdum þó ekki að fullu lokið og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát á ferðum sínum um svæðið. Bráðabirgðavegtenging er af Efri Jökuldal yfir á hinn nýja veg og verður svo um sinn.