Olíubíll valt, tvö þúsund lítrar láku af
Tómas Már forstjóri Alcoa á Íslandi
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, tekur við nýrri stöðu forstjóra Alcoa á Íslandi. Mun hann bæði stjórna Alcoa Fjarðaáli og stjórna undirbúningi og væntanlegri uppbyggingu nýs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík. Tómas Már segir Fjarðaál verða fyrirmynd nýrra álvera Alcoa og sú þekking sem skapast hafi þar muni nýtast vel til framtíðar. Tómas Már og kona hans, Ólöf Nordal alþingismaður, munu flytja heimili sitt frá Egilsstöðum til Reykjavíkur í kjölfar þessara breytinga.
Hafsteinn Viktorsson tekur við stöðu framkvæmdastjóra framleiðslu Fjarðaáls og mun jafnframt sjá um daglegan rekstur álversins. Þá mun hluti samfélags- og upplýsingateymis Alcoa Fjarðaáls framvegis starfa fyrir Alcoa á Íslandi.
Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir
Dagskrá helguð merkum Eskfirðingi
Kirkju- og menningarmiðstöðin í Fjarðabyggð heiðrar minningu eins ástsælasta og virtasta píanóleikara Íslendinga, Eskfirðingsins Rögnvaldar Sigurjónssonar, með því að efna til dagskrár í tali og tónum. Rögnvaldur hefði orðið níræður á morgun. Tónleikarnir verða á sunnudaginn 19. október og hefjast kl:16.00. Aðgangur er ókeypis.
Tónleikarnir verða haldnir í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskirði, en Rögnvaldur fæddist á Eskifirði og bjó þar fyrstu ár ævi sinnar. ...
Stuðningur í kreppunni
Stefnt er að því að upplýsingabæklingur, um ýmis atriði sem tengjast efnahagsþrengingum íslensku þjóðarinnar, frá AFLi starfsgreinafélagi fari í dreifingu inn á öll heimili í fyrramálið. Félagsþjónustur sveitarfélaganna og félagsmálaráðuneytið styðja einnig við fólk sem á erfitt vegna kreppunnar.
Bankar á Egilsstöðum vaktaðir
Lögregla vaktar nú banka á Egilsstöðum og við útidyr bankanna eru öryggisverðir frá Securitas.
Þegar blaðamaður Austurgluggans átti leið um miðbæinn um hálfþrjú leytið í dag stóð lögreglubifreið miðja vegu milli Glitnis og Landsbankans. Aðspurður sagði öryggisvörður í Landsbankanum að Securitas væri að auki með gæslu í Glitni og hjá Kaupþingi á Egilsstöðum, en hann vissi ekki til þess að gæsla væri í bönkum annars staðar á Austurlandi. ,,Við viljum gæta öryggis hér í ljósi þess að fólk hefur flykkst í bankana í Reykjavík og margir eru reiðir og sárir" sagði öryggisvörðurinn. Orðrómur er um að erlendir verkamenn á vegum Ístaks við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar hafi ætlað að fjölmenna í bankana til að millifæra laun sín eða taka út peninga. Í Landsbankann höfðu á annan tug manna af fyrrgreindum vinnustað komið í dag og öryggisvörðurinn vissi ekki hvort von væri á fleirum.
Félagarnir Peter, Hendrik og Anton frá Póllandi sögðust eiga í vandræðum með að fá peninga úr hraðbanka í anddyri Landsbankans og voru óhressir. Sögðust hræddir um peningana sína og ómögulegt væri að millifæra fé út til Póllands. Þeir starfa við Hraunaveitu.
Líf í tuskunum á Gjaldeyri við Ystunöf
Leikfélag Fljótsdalshérað frumsýnir n.k. laugardag gamanleikinn Góðverkin kalla. Leikritið gerist í þorpinu Gjaldeyri við Ystunöf og hverfist um hundrað ára afmæli sjúkrahússins á staðnum. Þorpsbúar efna til kappsfullrar söfnunar til að heiðra stofnunina á tímamótunum og sjást menn þar einatt ekki fyrir. ...
Víðar leitað fjár en í íslenska hagkerfinu
Bændur eru nú margir í óða önn að taka fé sitt á hús og velja sláturfé.
Svo var einnig um Geirmund bónda Þorsteinsson á Sandbrekku í Hjaltastaðarþinghá, en hann hýsti fé sitt um helgina og skildi villifé af öðrum bæjum frá.
Féð var sumt hið baldnasta og þannig stökk til að mynda einn vígalegur hrútur yfir girðingu sem fis væri og hljóp út í móa. Tíkin Káta elti hann þó uppi og við tóku svo bræðurnir Erlendur og Þorsteinn Steinþórssynir sem drógu hrússa nauðugan á hornunum í hús. Er skimað var yfir fjárhópinn þóttu lömbin óvenju lagðprúð og myndarleg af fjalli.
Vilja rannsaka hvort hætta geti steðjað að Lagarfljótsbrú
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur óskað eftir samstarfi við Vegagerðina og Landsvirkjun um framkvæmd frekari rannsókna í Lagarfljóti. Ástæðan er áhyggjur af því að ísmyndun og krapastíflur ógni Lagarfljótsbrú og því þurfi að rannsaka þessa þætti auk vatnsrennslis fljótsins. Málið var fyrst tekið upp við forstjóra Landsvirkjunar í febrúar sl. þegar fór að bera á krapastíflum við brúna og hærra vatnsborði en útreikningar höfðu gert ráð fyrir.
Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, sagði í samtali Austurgluggann að menn hafi vaknað upp við það sl. vetur að klakahröngl myndaðist við brúna. Á þeim tíma hafi vatnsborð verið hátt í fljótinu og þetta valdið áhyggjum. Heitavatnslögnin frá Hitaveitu Egisstaða og Fella liggi m.a. þarna í gegn og auk þess skelfilegt að missa samgöngumannvirkið ef það færi. ,,Ákveðin forvörn felst í að skoða þetta vel, því við höfum ekki séð þessar aðstæður áður og elstu menn ekki heldur," sagði Eiríkur. Því var óskað eftir fundi með Vegagerð og Landsvirkjun, sem hafa skipað fulltrúa til viðræðna við yfirstjórn Fljótsdalshéraðs um málið. Sá fundur hefur þó enn ekki verið haldinn.
Víkka þarf farveg Lagarfljóts
,,Við þurfum að vita hvort ástandið við brúna í fyrra hafi verið einstakt fyrirbæri eða hvort von er á slíku aftur. Jafnframt hafa þessir aðilar upplýsingar fyrir okkur og í framhaldi væri hægt að taka ákvörðun um hvort grípa þurfi til ráðstafana. Klakahrönglið varð áberandi við brúna á svipuðum tíma og hækkaði í fljótinu og því tengist þetta einnig viðræðum við Landsvirkjun og Vegagerð um hvort vatnshæðin sé ekki hærri og straumurinn meiri en reiknað var með. "
Eiríkur segir að aftur þurfi að taka upp umræður um hvort víkka þurfi farveg Lagarfljóts, t.d. við Straum, til að vatnið komist betur í gegn. Tappi sé greinilega í farveginum. ,,Nú eru þetta praktískir hlutir sem þarf að fást við, áður voru þetta aðeins tölur á blaði." Eiríkur hefur kynnt iðnaðarráðherra að skoða þurfi nánar farveg fljótsins m.t.t. víkkunar og óskað eftir að fulltrúi ráðuneytisins komi að þeirri vinnu. Jafnframt þykir ástæða til að fá fulltrúa frá umhverfisráðuneyti að málum, því á sínum tíma heimilaði þáverandi umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, ekki útvíkkun á farvegi Lagarfljóts. Því gæti þurft að taka upp umhverfismat.
Ný Lagarfljótsbrú er á samgönguáætlun 2011. Skv. aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs er tillaga um nýtt brúarstæði og brú. Lending austan megin verði u.þ.b. þar sem lægi ferjunnar Lagarfljótsormsins er í dag, en lending norðan megin á svipuðum stað og nú er.
Á morgun, laugardag, verður opin kynning á drögum að aðalskipulagstillögu Fljótsdalshéraðs. Fulltrúar ráðgjafa og sveitarfélagsins munu kynna drögin og þá stefnu sem í henni felst. Að því loknu verður efnt til umræðna með gestum fundarins. Fundurinn hefst í Valaskjálf, Egilsstöðum, kl. 13.
Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir