Djúpvogingur í útrás
Á vefsíðu Djúpavogshrepps, sem er ein af virkari vefsíðum fjórðungsins, birtist frétt um Gauta Jóhannesson og afrek hans á erlendri grundu.Heimamenn styðja Guðmund Ragnar í forsetaframboð
Um Eskifjarðarbæ gengur nú út um allt undirskriftalisti þar sem beðið er um stuðning við forsetaframboð Guðmundar Ragnars Kristjánssonar frá Eskifirði. Austurglugginn hefur þær fréttir að þegar hafi um 70 undirskriftir safnast og að heimamenn séu auðfúsir að sýna framboði Guðmundar stuðning.
Reiðhöll Hornfirðinga verður tilbúin í vor
Áætlað er að reiðhöllin á Hornafirði verði tilbúin til notkunar á vordögum, en búið er að reisa 8 bil af 13 og hefur gengið vel þegar viðrað hefur til framkvæmda. Reiðhöllin er 1570 fermetrar og er hún 54,35 metrar að lengd og 24 metrar að breidd. Hesthús er áfast við reiðhöllina og mun það rúma um 20 hross og er það 270 m2 að stærð.
Heimamenn fælast stranga skilmála
Strangir útboðsskilmálar Landsvirkjunar vegna útboðs
á rekstri mötuneytis og ræstinga í Fljótsdalsstöð hafa fælt heimamenn frá því
að bjóða í verkin. Þetta segir oddviti Fljótsdalshrepps. Talsmaður
Landsvirkjunar segir skilyrðin í samræmi við gæðastefnu fyrirtækisins. Útboðin
verða opnuð á morgun.
Metár í síldarfrystingu hjá Skinney-Þinganes
Síldveiðar í haust gengu með afbrigðum vel hjá Skinney-Þinganes á Hornafirði, þótt langt hafi verið að sækja síldina, en eins og kunnugt er hefur hún haldið sig í Grundarfirði.Tvö tilboð
HSA rekur Helgafell
Gjaldfrjáls leikskóli á Djúpavogi
Djúpavogshreppur sem er eitt hinum svokölluðu jaðarsveitarfélögum hefur sett ný viðmið fyrir önnur sveitarfélög á Austurlandi með gjaldfrjálsum leikskóla.