Allar fréttir
Dauðir rísa ... úr gröfum Skriðuklausturs
Minjasafn Austurlands, í samvinnu við Skriðuklaustursrannsóknir, opnar í dag, sumardaginn fyrsta, sýninguna ,,Dauðir rísa ... úr gröfum Skriðuklausturs.“ Sýningin fjallar um fólkið sem grafið var á Skriðklaustri frá tímum klaustursins (1493-1554) og fram á 18. öld. Aðstandendur sýningarinnar segja að með henni náist vonandi að kynnast örlítið hinum löngu liðna hugarheimi íslenskra miðalda og minnast fólksins sem á Skriðuklaustri var jarðað þó að lífshlaup þeirra sé enn að mestu hulin ráðgáta.
Vistvæn innkaup hjá Fljótsdalshéraði
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti í lok síðasta árs innkaupastefnu og innkaupareglur fyrir sveitarfélagið, í samræmi við lög um opinber innkaup nr. 84/2007. Umhverfisáherslur og vistvæn innkaup eru einn þáttur reglnanna.
Innkaupastefnan var unnin með hliðsjón af þörfum sveitarfélagsins, en innkaup og innkaupaaðferðir sveitarfélagsins voru tekin til skoðunar í því skyni.
Þýðendur íslenskra bókmennta þinga á Hala og í Reykjavík
Dagana 23.- 26. apríl verður haldið á Hala í Suðursveit og í Reykjavík alþjóðlegt þýðendaþing. Von er á 24 þýðendum erlendis frá en þeir koma frá Þýskalandi, Spáni, Póllandi, Danmörku, Englandi, Frakklandi, Hollandi, Rússlandi, Tékklandi, Noregi og Svíþjóð. 9 þýðendur sem búsettir eru hér á landi taka líka þátt í þinginu. Fjallað verður um íslenskar bókmenntir, vanda og vegsemd þýðandans og meðal annars sagt frá verkefninu „Sagenhaftes Island“, þýðingar- og kynningarátaki í tilefni þess að Ísland verður heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011.
Þjóðleg tónlistarstund á Skriðuklaustri á sumardaginn fyrsta
Í dag, sumardaginn fyrsta, verða Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran og Örn Magnússon píanóleikari með þjóðlega tónlistarstund á Skriðuklaustri kl. 15.00.
108 blaklið mæta til leiks 30. apríl
34. Öldungamót Blaksambands Íslands verður haldið á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði dagana 30. apríl – 2. maí 2009. Mótið hefur einungis verið haldið tvívegis á Austurlandi og þá í bæði skiptin á Neskaupstað árið 1999 og 2003. 108 lið mæta til leiks og eykst íbúafjöldi svæðisins um allt að þúsund manns þessa helgi.
Opnar í Breiðdalsá 1. maí
Opnað verður á veiðisvæðum Veiðiþjónustunnar Strengja í Breiðdalsá 1. maí næstkomandi. Um er að ræða silungasvæði og er bleikjan mætt í ósinn. Sást hún vaka þar á laugardag. Töluverður snjór er í fjöllum og lítur vel út með vatnsbúskap í Breiðdal fyrir sumarið. Þröstur Elliðason hjá Veiðiþjónustunni Strengjum segir að gengið hafi fremur treglega í Minnivallalæk í apríl fyrir utan að eitt holl fékk 12 fiska. Hann segir nokkuð laust af leyfum ennþá hér og hvar í þeim ám sem Strengir hafa á sinni könnu, en mikið sé spurt um lausa daga nú þegar vorfiðringur er komin í veiðimenn.