Birkir Pálsson, fyrrum þjálfari og fyrirliði knattspyrnuliðs Hattar, er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Huginn Seyðisfirði. Þá er staðfest að fyrirliðinn Rúnar Freyr Þórhallsson verður áfram hjá Huginn í sumar. Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið til sín tvo spænska leikmenn.
María Lena Olsen varð þriðja í keppni í módelfitness í Bandaríkjunum um helgina. Hún segir keppnina hafa verið frábæra reynslu. Framhaldið er óákveðið en árangurinn veitir henni frekari keppnisréttindi.
Skíðakonan Erna Friðriksdóttir var meðal þeirra sem styrk hlutu úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fyrir skemmstu. Þá hefur hún einnig fengið styrk frá Fljótsdalshéraði. Erna tekur þátt í vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í Rússlandi í mars.
Ólafía Svanbergsdóttir, ellefu ára stúlka úr Neskaupstað, vann til þrennra verðlauna á alþjóðlegu íþróttamóti fatlaðra í Malmö í Svíþjóð um síðustu helgi.
Karlalið Þróttar í blaki spilar tvo útileiki í úrvalsdeild karla í blaki í Kópavogi um helgina og yngri flokkar félagsins spila í bikarmóti í Árbæ. Körfuknattleikslið Hattar heimsækir Hamar í Hveragerði í kvöld.
Leikmenn úr meistaraflokkum Þróttar Neskaupstaðar þurftu að beita handafli til að losa snjóruðningstæki sem fast var á Möðrudalsöræfum í gærmorgunn. Liðin þurftu tvær tilraunir sem tóku samtals um ellefu klukkutíma til að komast yfir öræfin og misstu af þorrablótinu í Neskaupstað.
Steingrímur Örn Þorsteinsson úr UÍA varð um helgina Íslandsmeistari í langstökki innanhúss í flokki 14 ára pilta. Fleiri keppendur sambandsins náðu góðum árangri á Meistaramóti Íslands. Hamar stöðvaði sigurgöngu körfuknattleiksliðs Hattar, Leiknir varð í þriðja sæti Kjarnafæðismótsins og Þróttur tapaði fyrir toppliði HK í úrvalsdeild karla í blaki.
Egilsstaðabúinn María Lena Olsen keppir í módelfitness í Los Angeles í Bandaríkjunum á laugardag. Að baki er langur og strangur undirbúningur sem tekið hefur hátt í ár og krefst gríðarlegs sjálfsaga. Hún hlakkar til uppskerunnar á laugardag.
Höttur situr í þriðja sæti 1. deildar karla í körfuknattleik eftir góðan heimasigur á Fjölni á föstudag. Lokamínúturnar í leiknum voru æsispennandi og Andrés Kristleifsson reyndist betri en enginn þegar á reyndi.